Enginn framhaldsskólakennari meti stöðu nýnema mjög góða Áróra L Davíðsdóttir skrifar 16. júlí 2026 10:39 Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra. vísir/Lýður Valberg Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur lokið fyrstu greiningu á stöðu námsefnis í stærðfræði grunn- og framhaldsskóla. Þrjátíu prósent kennara segja aðalnámsskrá styðja vel við skýra framvindu í námi og sextíu og tvö prósent framhaldsskólakennara meta stöðu nýnema frekar eða mjög veika. Lagt er til að stærðfræði verði skilgreind sem forgangsverkefni til næstu þriggja ára.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins en þar segir að greiningin byggi á könnunum sem lagðar hafi verið fyrir kennara, samráði við skólasamfélagið og rýni á námskrá, námsgögnum, fyrri skýrslum og alþjóðlegum viðmiðum. Alls hafi 663 svör frá grunnskólakennurum og 89 svör frá framhaldsskólakennurum borist. Niðurstöður sýni að kjarnaefni sem komið sé til ára sinna sé enn burðarás kennslu en stuðningur, viðhald og tenging við námsmat hafi ekki fylgt nægilega með. Um 76 prósent grunnskólakennara segjast oft þurfa viðbótarefni og 84 prósent nota eigin verkefni reglulega. Aðeins 30 prósent telji aðalnámskrá styðja vel við skýra framvindu náms. Í greiningunni komi fram að kennarar haldi kerfinu að verulegu leyti gangandi með eigin námsefni, aðlögun og undirbúningi. Enginn framhaldsskólakennari í könnuninni meti stöðu nýnema mjög góða og 62 prósent meti hana frekar eða mjög veika. Aðeins 10 prósent segi samskipti við grunnskóla markviss. „Áhyggjur kennara af núverandi kjarnaefni, fyrri skýrslur um veikleika í námsgögnum, veikur og misjafn undirbúningur nemenda fyrir framhaldsskóla, skortur á sérhæfingu kennara, slakar niðurstöður í PISA í stærðfræði og aukin áhersla á STEM-greinar sbr. atvinnustefnu stjórnvalda, kalla öll á sterkari og markvissari grunn í stærðfræði fyrr á skólagöngunni,“ segir í tilkynningunni. Ekki dugi að horfa til einstakra gagna í ljósi niðurstaðnanna. Aðalnámskrá, námsefni, námsmat, kennarastuðningur og starfsþróun þurfi að vinna betur saman svo hægt sé að byggja sterkan stærðfræðigrunn fyrir nemendur. Í greiningunni sé lagt til að stærðfræði verði skilgreind sem forgangsverkefni til næstu þriggja ára. „Nýtt kjarnaefni verði valið á grundvelli faglegra gæðaviðmiða og innleiðing hefjist á miðstigi grunnskóla, en verkefnið verði frá upphafi hannað með samfellu í stærðfræðinámi frá 1. til 10. bekk í huga. Samhliða þurfi að fjármagna kjarnaefni, innleiðingu, stöðumat, viðhald, starfsþróun kennara og markvissa samfellu milli grunn- og framhaldsskóla.“
Skóla- og menntamál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Framhaldsskólar Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Nóg sé komið af Trump Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira