„Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Smári Jökull Jónsson skrifar 15. júlí 2026 12:28 Guðlaugur Kristmundsson er formaður Félags fósturforeldra. Vísir/Vilhelm/Anton Brink Forsvarsmenn Félags fósturforeldra hafa þurft að leiðbeina barnaverndarstarfsmönnum um réttindi fósturbarna að sögn formanns félagsins sem segir stöðuna í málaflokknum verri en niðurstöður nýrrar skýrslu sýni. Skýrslan afhjúpi hversu víða er illa haldið utan um mál fósturbarna.
Skýrsla Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála (GEV) var birt í gær þar sem gert var grein fyrir niðurstöðum frumkvæðisathugunar stofnunarinnar á eftirliti barnaverndarþjónusta með börnum í fóstri. Meðal þess sem kemur fram í skýrslunni er að tæplega helmingur aðila sem eru með fósturbörn í sinni umsjón eru ekki með fósturleyfi frá GEV. Þá gefi yfirferð gagnanna tilefni til að ætla að barnaverndarþjónustum sé ekki að öllu leyti ljóst hvað teljist til eftirlitsheimsókna á fósturheimili í skilningi barnaverndarlaga og hvaða kröfur séu gerðar til framkvæmdar þeirra. Barnaverndarstarfsfólk þekki ekki réttindi fósturbarna Formaður Félags fósturforeldra segir niðurstöðurnar ríma við tilfinningu forsvarsmanna félagsins um hvernig staðan hefur verið. „Þarna afhjúpast hversu víða er illa á þessum málaflokki haldið og niðurstaðan segir okkur auðvitað að eftirlitsheimsóknirnar hafa ekki verið framkvæmdar alls staðar og skort á að gera þær á réttan hátt,“ segir Guðlaugur Kristmundsson formaður Félags fósturforeldra. Það sem ekki komi fram í skýrslunni sé brotalöm hvað varðar stuðning við fósturbörn og foreldra. „Öll börn í fóstri eru að takast á við áfall að einhverju leyti. Fósturforeldrar eru bara foreldrar þessarar barna og hjálpa til við þessi áföll og vinna með það með alls konar meðferðaraðilum.“ „Við höfum oft verið í þeirri stöðu, forsvarsfólk í félaginu, að leiðbeina barnaverndarstarfsmönnum víða um land um réttindi þessara barna og fósturforeldra til að ná því fram að börn geti unnið úr þessum áföllum,“ bætir Guðlaugur við. Staðan verri en skýrslan segi því barnavernd hafi vitað af skýrslunni Umfjöllun um Bakkakotsmálið og fleiri álíka mál hafi vakið athygli á eftirliti með fósturheimilum. Skýrsla GEV sýni punktstöðu þann 1. apríl, barnaverndarþjónustur hafi í aðdragandanum fengið tækifæri til að herða á heimsóknum og staðan sé í raun verri en skýrslan sýni. „Og við vitum það af samtölum við félagsmenn að barnaverndarþjónusturnar hafa gefið í í aðdraganda 1. apríl við að reyna að ljúka sem mest af eftirlitsheimóknum. Þannig að þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri. Vegna þess að barnaverndarþjónsturnar vissu af þessari punktstöðu sem yrði tekin í þessari skýrslu.“ Í könnun sem Félag fósturforeldra gerði á meðal félagsmanna þar sem niðurstöðurnar hafi verið svipaðar að mörgu leyti. Í kjölfarið var haldið málþing sem Guðlaugur segir hafa verið vel sótt af barnaverndarstarfsmönnum og starfsmönnum eftirlitstofnana. Það hafi hins vegar verið niðurstöður könnunar en ekki almenn úttekt líkt og nú. Draga þurfi lærdóm af skýrslunni. „Við erum sem samfélag rosalega dugleg að draga fram tölur um atvinnuleysi, hver var verðbólgan og annað slíkt. Þessi börn eru ekki mörg börn í hlutfalli við börn á Íslandi en þetta er rosalega viðkvæmur hópur. Að við getum ekki sem samfélag haldið þannig utan um þennan hóp og gefið út mánaðarlegar tölur eða ársfjórðungslegar skýrslur, heldur þurfi svona mikið átak til.“ Betra utanumhald geti sparað peninga Þessi hópur fái ekki þá athygli sem þarf og málaflokkurinn ekki þau úrræði eða fjármagn sem þurfi til að gera hlutina vel. Þá þurfi að skilgreina vel hvaða aðgerðir þarf að ráðast í og barnaverndarstarfsfólk eigi með einföldum hætti að geta séð hvenær verkefnum sé lokið og stöðuna á heildstæðan hátt. „Af því að ég held að ef við gerum þetta vel þá getum við sparað pening og um leið tryggt að við séum að veita börnum réttu aðstoðina og nógu tímanlega.“ Guðlaugur segist engu að síður ánægður með samtal sem nú sé í gangi við hið opinbera og segir stjórnvöldum til hróss að Félag fósturforeldra hafi aldrei verið dregin jafn oft að borðinu í samtölum um málaflokkinn og nú. „Ég held að eftirlitsaðilar hafi áttað sig á því að það erum við sem höfum verið í samskiptum við þessar barnaverndarnefndir og oft að fræða barnaverndarstarfsmenn víða um land um þennan málaflokk.“ „Skýrslan segir að það sé fullt af barnaverndarþjónhstum sem hafa engin börn í fóstri og aðrar tvö eða þrjú börn. Það segir sig sjálft að þegar kemur til þess að senda þarf börn í fóstur til þessara barnaverndarþjónusta að þá er þekkingin ekki til staðar, hver sé lagalega skyldan og hvernig ber að framfylgja henni,“ segir Guðlaugur. „Þessir starfsmenn eru auðvitað í góðum ásetningi að bregðast við aðstæðum en þekkingin er kannski ekki til staðar.“ Félagið orðið faglegra en áður Þá vill Guðlaugur koma því sérstaklega á framfæri að Félag fósturforeldra hafi fyrir tilstuðlan og velvildar fyrirtækja og sjóða í landinu getað unnið að þessum málum á faglegri hátt án áður. „Við höfum getað verið með starfsmann í hálfu starfi þannig að við, sem erum í forystuhlutverki fyrir þetta félag, höfum getað nýtt krafta okkar betur en í það að sinna skrifstofumálum.“ „Það hefur gert það að verkum að Félag fósturforeldra og fóstuforeldrarnir erum öflugra samfélag og erum faglegri þegar leitað er til okkar um afstöðu og stuðning.“
Fósturbörn Barnavernd Börn og uppeldi Vistheimili Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Ekki í fyrsta sinn sem Trump stingur upp á Ísland yrði hluti af Bandaríkjunum „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Sjá meira