„Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar 15. júlí 2026 11:00 Það er fátt sem grefur jafn hratt undan trausti á réttarríkinu og þegar almenningur sér með eigin augum að lög gilda ekki jafnt fyrir alla. Þeir sem muna eftir sambærilegri umræðu um ólöglega sölu áfengis, en í þá daga var talað um,,sprúttsala“, einstaklinga sem seldu áfengi ólöglega úr heimahúsum eða úr skottum bíla. Sumir muna jafnvel eftir því að hægt var að fá leigubíl heim að dyrum með áfengi, ef maður vissi við hvern átti að tala (fá einn góðan bíl takk). Þetta þótti ekki eðlilegt ástand heldur merki um samfélag þar sem ólögleg sala áfengis hafði náð fótfestu. Er einhver munur á þeim sem þetta stunduðu og þeim sem nú eru á ferðinni. Íslendingar hafa á undanförnum mánuðum og árum orðið vitni að einkennilegri þróun. Héraðsdómur Reykjaness hefur komist að þeirri skýru niðurstöðu að netsala áfengis, með þeim hætti sem smáríkið stóð að, sé ólögmæt smásala og brjóti gegn gildandi áfengislögum. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins var sakfelldur og dæmdur til sektar. Venjulega myndi fólk ætla að þar með væri málinu lokið. Dómur hefði fallið og stjórnvöld sæju til þess að honum yrði framfylgt. En NEI. Í stað þess virðist samfélagið hafa ákveðið að taka upp nýja framkvæmd. Starfsemin heldur áfram. Auglýsingarnar halda áfram. Umræðan snýst ekki um framkvæmd dómsins heldur hvort breyta eigi lögunum síðar. Þetta er í raun stórmerkileg nýjung í íslenskri stjórnsýslu. Kannski höfum við bara misskilið hvernig réttarríkið virkar. Kannski þarf maður ekki lengur að fara eftir lögum sem manni líkar ekki við. Kannski er nóg að segja að lögin séu úrelt, ósanngjörn eða ekki í takt við tímann og halda síðan einfaldlega áfram þar til Alþingi ákveður að breyta þeim. Það væri vissulega þægilegt fyrir marga. Þá mætti spyrja hvort þessi regla eigi líka við á öðrum sviðum samfélagsins. Gætu þeir sem aka sviptir ökuréttindum einfaldlega bent á að þeim finnist umferðarlögin úrelt? Gætu þeir sem selja fíkniefni útskýrt að þeir séu bara ósammála gildandi löggjöf og haldið síðan áfram þar til Alþingi kemst að annarri niðurstöðu? Auðvitað ekki. Af hverju ætti þá önnur lög að njóta annarrar meðferðar? Það sem vekur þó hvað mesta furðu er þögnin. Læknar og sérfræðingar í lýðheilsu hafa árum saman bent á skaðsemi áfengis og mikilvægi þess að takmarka aðgengi að slíkum veigum. Lára G. Sigurðardóttir, læknir og doktor í lýðheilsuvísindum, lýsir því yfir að henni finnist óskiljanlegt að dómur sem bannar netsölu áfengis sé ekki framfylgt. Hún bendir á að nær fjórðungur þjóðarinnar sýni skaðlegt neyslumynstur og að tugþúsundir fjölskyldna finni fyrir afleiðingum áfengisvandans. Embætti landlæknis hefur jafnframt sýnt fram á að aldurseftirlit í netsölu er víða stórlega ábótavant. Í mörgum tilfellum var hvorki krafist rafrænna skilríkja né staðfestingar á aldri við afhendingu. Framkvæmdastjóri FRÆ Árni Guðmundsson hefur því lýst þessari þróun sem „opnum krana" fyrir börn og ungmenni. Samt virðist ekkert gerast. Kannski er það þó ekki það undarlegasta. Það undarlegasta er líklega að á sama tíma og dómstóll hefur komist að þeirri niðurstöðu að starfsemin sé ólögmæt birtast auglýsingar frá sama fyrirtæki á RÚV. Adolf Ingi Erlingsson sendi Stefáni Eiríkssyni, útvarpsstjóra RÚV, fyrirspurn um áfengisauglýsingar á RÚV og birti hana á Facebook-síðu sinni. „Finnst þér, sem útvarpsstjóri og fyrrverandi lögreglustjóri, þetta virkilega forsvaranlegt?," spyr Adolf. Fjölmiðli í eigu almennings sem á samkvæmt lögum og hlutverki sínu að vinna í almannaþágu, vera fyrirmynd og gæta sérstakrar ábyrgðar. Það er erfitt að finna betra dæmi um tvískinnung. Annar armur ríkisins segir: „Þetta brýtur lög." Hinn armurinn segir: „Næstu auglýsingar eru í boði..." En þetta er veruleikinn. Hér er ekki verið að ræða smávægilegt formsatriði. Hér er verið að ræða grundvallaratriði réttarríkisins. Lög eru ekki tillögur. Dómar eru ekki álit. Þeir eru niðurstaða sjálfstæðra dómstóla sem stjórnvöldum ber að virða og framfylgja. Ef stjórnvöld telja lögin gölluð eiga þau að leggja fram frumvarp um breytingar. Ef Alþingi samþykkir breytingarnar taka ný lög gildi. Þangað til gilda gömlu lögin. Það er ekki flóknara en það. Þegar stjórnvöld senda þau skilaboð að sum lög séu valfrjáls en önnur ekki skapast hættulegt fordæmi. Þá fer almenningur óhjákvæmilega að spyrja: Hvaða lög eru það næst sem verður ekki talið ástæða til að framfylgja? Hver fær að ákveða það? Það er kaldhæðnislegt að á sama tíma og sífellt meiri áhersla er lögð á forvarnir, ábyrgð og virðingu fyrir lögum virðist hið opinbera sjálft eiga í erfiðleikum með að sýna þessa sömu virðingu þegar á reynir. Í meira en fjóra áratugi hef ég starfað á vettvangi refsivörslunnar. Ég hef oftar en einu sinni sagt einstaklingi sem brotið hefur af sér að það skipti engu máli hvort honum finnist lögin sanngjörn eða ekki. Það hefur verið einfalt svar og eina rétta svarið. Þess vegna á ég erfitt með að útskýra fyrir þeim í dag hvers vegna þessi regla virðist ekki gilda fyrir alla. Traust á réttarríkinu byggist ekki á fallegum orðum í stefnuskjölum. Það byggist á því að lög gildi jafnt fyrir alla. Alltaf. Höfundur er framkvæmdastjóri Verndar og varaformaður SÁÁ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Netverslun með áfengi Áfengi Mest lesið 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Sjá meira
Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun