Mette-Marit útskrifuð af sjúkrahúsi Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 14. júlí 2026 11:32 Mette Marit átti erfitt með öndun vegna sjúkdómsins. Per Ole Hagen/Getty Images Mette-Marit, krónprinsessa Noregs, hefur verið útskrifuð af sjúkrahúsi eftir að hún gekkst undir lungnaígræðslu í síðasta mánuði. Hún tekur sér frí frá konunglegum skyldum í nokkurn tíma til viðbótar. „
Ég er innilega þakklát. Fyrst vil ég þakka öllum sem velja að gefa líffæri. Það hefur gefið mér lífið að gjöf og orð fá því ekki lýst hversu þakklát og auðmjúk ég er fyrir það,“ er haft eftir Mette-Marit í tilkynningu frá norsku konungsfjölskyldunni. Metta-Mari greindist með lungnatrefjun fyrir um ári síðan og hrakaði heilsu hennar til muna. Hún fór í veikindaleyfi í september 2025 og sást víða með súrefnisgleraugu. Hún gekkst undir lungnaígræðslu í júnímánuði og er nú loks útskrifuð af sjúkrahúsinu. „Það er mikill léttir að krónprinsessan sé komin heim af spítalanum. Við erum öll mjög glöð yfir því að fyrsti áfanginn hafi gengið jafn vel og hann hefur gert,“ er haft eftir Hákoni krónprins, eiginmanni Mette-Marit. „Þótt við vitum að langur bati sé fram undan og að fylgikvillar geti komið er mjög góð tilfinning að vera komin svona langt.“ Næstu sex mánuði mun Mette-Marit gangast undir þjálfun auk þess sem hún verður í nánu eftirliti vegna hugsanlegra fylgikvilla eins og höfnunar og sýkinga. Ekki er áætlað að hún gegni opinberum skyldum á meðan á endurhæfingartímabilinu stendur.
Noregur Kóngafólk Haraldur V Noregskonungur Tengdar fréttir Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Mette-Marit krónprinsessa Noregs hefur gengist undir vel heppnaða lungnaígræðslu en hún greindist með lungnasjúkdóm sem kallast lungnatrefjun fyrir um ári síðan. Í september 2025 fór hún í veikindaleyfi vegna þess og hefur undandarið sést með súrefnisgleraugu. 17. júní 2026 08:22 Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Sjá meira
Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Mette-Marit krónprinsessa Noregs hefur gengist undir vel heppnaða lungnaígræðslu en hún greindist með lungnasjúkdóm sem kallast lungnatrefjun fyrir um ári síðan. Í september 2025 fór hún í veikindaleyfi vegna þess og hefur undandarið sést með súrefnisgleraugu. 17. júní 2026 08:22