Ofveiðin í ESB fyrir 500 árum Sigurjón Þórðarson skrifar 13. júlí 2026 07:31 Einn veigamikill þáttur í útgöngu Breta úr Evrópusambandinu var gríðarleg óánægja með fiskveiðistefnu sambandsins, en almenn óánægja er með stefnuna meðal sjómanna. Í umræðu um ólánlega fiskveiðistefnu ESB er ekki eins og það sé tóm hamingja með íslenska kvótakerfið sem brýtur gegn jafnræði borgaranna og hefur fjölmörg einkenni fiskveiðistefnu ESB, m.a. miðlæga stjórnun með fiskveiðikvótum, uppkaup á veiðiheimildum og algert árangursleysi. Ójafnræðið á Íslandi er það mikið að dæmi eru um að minni aðilar innan greinarinnar telja sig ekki verr setta þó svo landið gangi inn bandalagið Sjávarútvegur hefur dregist mikið saman í flestum strandríkjum Evrópusambandsins þrátt fyrir aukið eftirlit, hertari reglur og „vísindalegt“ uppbyggingarstarf. Stofnar sem ekki hafa verið veiddir um árabil eru jafnvel taldir ofveiddir. Ofveiðin virðist vera orðin einhver mantra og kapp er hlaupið í „fræðimenn“ við að reikna út ofveiði jafnvel aftur í aldir út frá mjög fátæklegum gögnum, m.a. á síld fyrir 500 árum í Norðursjó. Vægi atvinnugreinarinnar má sín ekki mikils gagnvart sjónarmiðum græna geirans og stórborgarviðhorfa sem líta atvinnugreinina hornauga, vilja setja henni enn frekari skorður og lítið hlusta á þær raddir sem vilja reyna aðrar leiðir, t.d. opna lokuð svæði og auka veiðar. Ef landsmenn segja já við að halda áfram viðræðum um inngöngu í ESB í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu er mikilvægt að hafa ofangreind sjónarmið í huga og setja skýran fyrirvara við ráðgjöf Alþjóðahafrannsóknaráðsins um úthlutun veiðiheimilda í íslenskri lögsögu. Án fyrirvara yrði veiðiheimildum úthlutað frá Brussel og alfarið á grundvelli ráðgjafar Alþjóðahafrannsóknaráðsins sem er að vísu af sama stofni og ráðgjöfin sem Hafró notast nú við. Það er ágætt að rifja upp að hún hefur leitt til mun minni afla í nær öllum fisktegundum við strendur Íslands og er því augljóslega ekki yfir gagnrýni hafin eins og fyrr greinir. Helsti gallinn við ráðgjöf ESB er að hún markast af stórgölluðum reiknilíkönum þar sem horft er á hverja fisktegund fyrir sig og vikið til hliðar vistfræðilegum lögmálum á borð við að iðulega aukast afföll hlutfallslega eftir því sem fiskstofnar stækka. Veiðiráðgjöfin tekur ekki mið af líkamlegu ástandi fisks, þ.e. hvort hann er feitur eða magur, heldur eingöngu stofnstærðarmati sem er mikilli óvissu háð. Síldarstofninn sem var „ofveiddur“ stækkaði Það segir ákveðna sögu að ESB hefur metið það svo að norsk-íslenska síldin hafi verið ofveidd stórlega samfellt í 13 ár. Engu að síður gefa nýjar mælingar til kynna að þrátt fyrir umrædda ofveiði sé stofninn 16% stærri en hann var mældur í fyrra. Eðlilega kom þessi vöxtur reiknisfiskifræðingum ESB í opna skjöldu en alls ekki þeim náttúrufræðingum sem draga ályktanir út frá vistfræðilegum forsendum. Náttúrufræðingar á borð við fiskifræðinginn Jens Christian Holst sem tekur með í reikninginn samspil tegunda sem keppast um sömu fæðuna á svipuðum slóðum, m.a. sílda, makríl og kolmunna um ljósátu, sáu það í hendi sér að gefi makríll eftir er úr meiru að moða fyrir síldina. Sömu sögu er að segja um kolmunnann sem mældist í ár mun stærri þrátt fyrir meinta gríðarlega ofveiði og mikinn niðurskurð á aflaheimildum. Aflareglur án markmiða Til viðbótar við að ekki er tekið tillit til vistfræðilegra þátta er eitt og annað áhugavert við reiknilíkönin og aflareglurnar. Ekki virðist vera neitt skýrt markmið sett um hverju reglurnar eigi að ná fram í afla eftir ákveðinn tíma. Engin forspá er um árangur. Þegar ljóst er að reglan skilar neikvæðum árangri er sökinni venjulega skellt á umhverfisbreytingar með óljósum hætti. Það er t.d. snúið að fá einhvern botn í það hvers vegna aflaregla á þorski leyfir að veiða hlutfallslega 50% meira af stofnstærð þorsks en síldar þegar það liggur fyrir að síldin verður kynþroska fyrr en þorskurinn. Það væri nær að horfa okkur nær áður en farið er í ESB leiðangur og tryggja jafnræði í sjávarútvegi og taka ráðgjöfina til endurskoðunar út frá vísindalegri vistfræð,i í stað þess að festast enn frekar í reglum sem byggja miklu frekar á vaxtaútreikningum á bankabók en viðtekinni vistfræði. Höfundur er þingmaður Flokks fólksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Sigurjón Þórðarson Flokkur fólksins Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Skoðun Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar