Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Valur Páll Eiríksson skrifar 11. júlí 2026 13:46 Adams keppti á HM með þjóð sinni fyrir skemmstu en nú fallinn frá. Ulrik Pedersen/NurPhoto via Getty Images Suður-afríski miðjumaðurinn Jayden Adams er látinn aðeins 25 ára að aldri, örfáum vikum eftir að hafa spilað með landsliði sínu á HM karla í fótbolta.
Leikmannasamtök Suður-Afríku, SAFPU, hafa staðfest skyndilegt fráfall hans. Ekki fylgir sögunni hvernig það bar að. „SAFPU er í sárum vegna ótímabærs andláts Jayden Adams, miðjumanns Mamelodi Sundowns og Bafana Bafana,“ segir í yfirlýsingu samtakanna. Bafana Bafana er gæluheiti yfir suður-afríska landsliðið. „Jayden spilaði nýlega fyrir Suður-Afríku á HM 2026 og bar vonir þjóðarinnar með stolti, hugrekki og sóma,“ segir einnig í yfirlýsingunni. „Það er í miklu áfalli og þungu hjarta sem ég hef frétt af andláti Jayden Adams,“ sagði Gayton McKenzie, íþrótta-, lista- og menningarmálaráðherra Suður-Afríku, í yfirlýsingu. „Suður-afrískur fótbolti hefur misst einn af sínum björtustu ungu hæfileikamönnum og þjóð okkar syrgir ásamt fjölskyldu hans, liðsfélögum og milljónum stuðningsmanna sem horfðu á hann vaxa úr efnilegum leikmanni úr akademíunni í fullgildan landsliðsmann Bafana Bafana.“ Adams spilaði alla þrjá leiki Suður-Afríku í riðlakeppninni á HM. Liðið féll úr leik í 32-liða úrslitum fyrir Kanada.
Suður-Afríka HM 2026 í fótbolta Andlát Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Fleiri fréttir Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Sjá meira