Er ekki komið gott af því að mæta í sumarfrí eins og sími á 2% rafhlöðu? Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir skrifar 11. júlí 2026 07:02 Það er merkilegt hvað við erum dugleg að skipuleggja vinnuna okkar en gleymum stundum að skipuleggja hvíldina. Margir fara í sumarfrí með eina hugsun: „Nú ætla ég loksins að ná mér." Eins og sumarfríið sé þjónustuverkstæði sem á að gera við allt sem fór úrskeiðis yfir veturinn. Ef við þurfum heilt sumar til að jafna okkur eftir veturinn, þá er eitthvað í starfsárinu sem þarf að skoða. Þrjár vikur í júlí eiga nefnilega ekki að sinna því hlutverki sem heilbrigt vinnuumhverfi á að sinna alla tólf mánuðina. Við hjá Attentus vinnum daglega með stjórnendum sem vilja skapa vinnustaði þar sem fólk getur bæði blómstrað og viðhaldið heilbrigðri starfsorku. Líkt og birkitréð þarf næringu úr jarðveginum, sterkar rætur og svigrúm til að vaxa þurfum við líka að hlúa að eigin orku. Sem betur fer reynir enginn að hvetja birkið til að „bara herða sig aðeins" þegar það hefur staðið í norðanroki allan veturinn. Streita er ekki alltaf óvinurinn. Smá streita getur verið eins og gott espresso. Fimmti bollinn fyrir hádegi er hins vegar allt annað mál. Vandinn skapast þegar við gefum okkur aldrei tíma til að endurhlaða. Hvíld er ekki leti. Hún er forsenda þess að við getum blómstrað. Rannsóknir sýna að regluleg endurheimt dregur úr kulnun, eykur sköpunargáfu, bætir ákvarðanatöku og styrkir bæði líkamlega og andlega heilsu. Þegar hugurinn fær að róast vinnur heilinn úr reynslu, sér heildarmyndina skýrar og á auðveldara með að skapa nýjar hugmyndir. Er ekki komið gott af því að safna upp þreytu fram í júlí? Væri ekki skynsamlegra að byggja upp starfsorkuna jafnt og þétt allt árið svo sumarfríið verði bónus en ekki björgunaraðgerð? Leggðu símann frá þér. Farðu út. Finndu ilminn af skóginum. Andaðu djúpt. Leyfðu huganum að reika. Finndu moldina undir fótunum. Birkið vex ekki hraðar af því að reyna meira. Það vex þegar aðstæður leyfa því að vaxa. Það sama á við um okkur. Ég óska ykkur öllum sumarfrís sem gefur ekki aðeins góðar minningar heldur líka nýja orku, skýrari hugsun og meiri innri ró. Því besta fjárfestingin fyrir haustið gæti verið að gera sem minnst í nokkrar vikur. Kannski ættum við að hætta að spyrja: „Hvað ætlarðu að gera í sumarfríinu?“ og byrja frekar að spyrja: „Hvernig ætlarðu að haga vinnunni í haust svo næsta sumar verði frí en ekki viðgerð?“ Ég vona að við förum að líta á hvíld sem hluta af hverjum degi, ekki bara sumarfríinu. Því mér finnst í alvöru komið gott af því að mæta í sumarfrí eins og sími á 2% rafhlöðu. Höfundur er ráðgjafi hjá Attentus. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Skoðun Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar