Bíó og sjónvarp

Pulp Fiction-stjarna heiðurs­gestur á RIFF

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Maria de Madeiros lék Fabienne í Pulp Fiction árið 1994 og kemur til landsins í október.
Maria de Madeiros lék Fabienne í Pulp Fiction árið 1994 og kemur til landsins í október.

Portúgalska leikkonan Maria de Madeiros, sem lék Fabienne í Pulp Fiction, verður heiðursgestur á kvikmyndahátíðinni RIFF. Á hátíðinni verður haldin sérstök stemmingssýning á Pulp Fiction í samstarfi við Hamborgarabúllu Tómasar þar sem gestum gefst tækifæri á að smakka hamborgarana sem koma við sögu í myndinni.

Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF, leggur sérstaka áherslu á Portúgal í ár og verður hin portúgalska Maria de Madeiros, sem hefur meðal annars leikið í Henry & June (1990), Pulp Fiction (1994) og Chicken With Plums (2011), meðal heiðursgesta.

Í tilefni af komu hennar býður RIFF, í samstarfi við Hamborgarabúllu Tómasar, upp á einstaka stemningssýningu á meistaraverkinu Pulp Fiction eftir Quentin Tarantino þann 2. október í Háskólabíó. Maria verður viðstödd sýninguna og mun taka þátt í samtali við áhorfendur að henni lokinni.

Bruce Willis og Maria de Madeiros sem Butch og Fabienne.

Til að fullkomna Pulp Fiction-upplifunina býður Hamborgarabúlla Tómasar gestum upp á hamborgaraveislu í hléi. Við miðakaup velja gestir einn af þremur borgurum í anda myndarinnar: Royale With Cheese, Big Kahuna Burger og The Durward Kirby Burger. Með borgaranum fylgir svo hinn nafntogaði „5 dollara mjólkurhristingur“ án búrbons eða annarra aukefna.

Þess ber að geta að árið 2021 þá endurgerðu leikararnir Halldóra Geirharðsdóttir og Tómas Lemarquis borgarasenuna frægu úr Pulp Fiction fyrir RIFF en hana má sjá hér að neðan:

Takmarkað sætaframboð verður á sýninguna og áhugasamir eru hvattir til að tryggja sér miða á vef RIFF en hátíðin fer fram dagana 24. september til 4. október næstkomandi.


Tengdar fréttir

Kim Novak heiðursgestur RIFF

Hollywood-stjarnan Kim Novak verður einn heiðursgesta Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík (RIFF) sem hefst 25. september. Ný heimildarmynd um leikkonuna verður opnunarmynd hátíðarinnar og verða tvær sígildar myndir hennar einnig sýndar.

Anton Corbijn heiðursgestur RIFF

Anton Corbijn, hollenskur kvikmyndagerðamaður og ljósmyndari, verður einn heiðursgesta á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF, sem hefst í næsta mánuði. Einhverjar kvikmyndir hans verða sýndar á hátíðinni.

Bong Joon Ho verður stafrænn heiðursgestur á RIFF

Suður-Kóreski handritshöfundurinn og leikstjórinn Bong Joon Ho verður heiðraður á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík í ár. Hann er hvað þekktastur fyrir kvikmyndina Parasite, sem hlaut Óskarsverðlaun sem besta myndin árið 2020.

Nastassja Kinski heiðursgestur á RIFF í ár

Þýska kvikmyndaleikkonan og fyrirsætan Nastassja Kinski er heiðursgestur á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík í ár og hreppir heiðursviðurkenningu RIFF. Hátíðin hefst í Háskólabíói þann 26. september næstkomandi og stendur til 6. október.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.