Ekki sjá eftir atkvæðinu þínu! Arnar Steinn Þórarinsson skrifar 8. júlí 2026 09:30 Ertu að pæla í að kjósa nei í ágúst? Gefðu mér þá nokkrar sekúndur í að sannfæra þig um að íhuga það allavega að kjósa JÁ. Mikilvægasta kosning okkar tíma Þetta er án efa sú mikilvægasta ákvörðun sem að þú sem einstaklingur munt þurfa að kjósa um í langan tíma. Þetta eru ekki einhverjar þing- eða sveitarstjórnarkosningar þar sem kosið er á fjögurra ára fresti. Heldur erum við að kjósa um möguleika Íslands til framtíðar. Ekki bara næstu 5-10 árin heldur næstu 50-100+ árin. Um framtíðina þína, barnanna þína og barnanna þeirra. Mér finnst persónulega og af einlægni ekki rétt að útiloka ESB aðild alveg strax, allavega ekki þegar við höfum ekki samninginn fyrir framan okkur. Þess vegna kýs ég já til að SJÁ. Hvernig verða hlutirnir eftir 5 ár? Ímyndaðu þér núna að þú kjósir nei í ágúst. Ímyndaðu þér svo hvernig hlutirnir verða eftir 5 ár. Vextir eru ennþá að drepa okkur. Verðbólgan fer upp og niður eins og öldurnar við Hörpu í slæmu veðri. Það ríkir hér ennþá fákeppnismarkaður, lítil og meðalstór fyrirtæki ströggla við að vaxa og dafna og þú spyrð þig: „Æi, hefði ég kannski átt að kjósa já, það var kannski betra að SJÁ allavega hvað var í boði.“ Myndaðu þér þína eigin skoðun Ég er ekki hér til að neyða þig til að kjósa já. Ég vil bara að allir hugsi vel og taki meðvitaða ákvörðun núna í lok sumars. Ég er bara raunverulega stressaður um að við sem þjóð munum sjá eftir því að kíkja ekki í pakkann. Ég bið þig um að hugsa vel og vandlega yfir sumarið, hlusta á hjartað og engan annan og taktu ákvörðun sem þú munt ekki sjá eftir. Við erum með tækifæri núna sem er alls ekki víst að við munum nokkurntíman fá aftur. Núna er tíminn. Við getum svo alltaf sagt nei við samningnum ef hann er svo bara eitthvað drasl. Höfundur er forseti nemendafélags Borgarholtsskóla og meðstjórnandi ungliðahreyfingar Viðreisnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Skoðun Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Sjá meira
Ertu að pæla í að kjósa nei í ágúst? Gefðu mér þá nokkrar sekúndur í að sannfæra þig um að íhuga það allavega að kjósa JÁ. Mikilvægasta kosning okkar tíma Þetta er án efa sú mikilvægasta ákvörðun sem að þú sem einstaklingur munt þurfa að kjósa um í langan tíma. Þetta eru ekki einhverjar þing- eða sveitarstjórnarkosningar þar sem kosið er á fjögurra ára fresti. Heldur erum við að kjósa um möguleika Íslands til framtíðar. Ekki bara næstu 5-10 árin heldur næstu 50-100+ árin. Um framtíðina þína, barnanna þína og barnanna þeirra. Mér finnst persónulega og af einlægni ekki rétt að útiloka ESB aðild alveg strax, allavega ekki þegar við höfum ekki samninginn fyrir framan okkur. Þess vegna kýs ég já til að SJÁ. Hvernig verða hlutirnir eftir 5 ár? Ímyndaðu þér núna að þú kjósir nei í ágúst. Ímyndaðu þér svo hvernig hlutirnir verða eftir 5 ár. Vextir eru ennþá að drepa okkur. Verðbólgan fer upp og niður eins og öldurnar við Hörpu í slæmu veðri. Það ríkir hér ennþá fákeppnismarkaður, lítil og meðalstór fyrirtæki ströggla við að vaxa og dafna og þú spyrð þig: „Æi, hefði ég kannski átt að kjósa já, það var kannski betra að SJÁ allavega hvað var í boði.“ Myndaðu þér þína eigin skoðun Ég er ekki hér til að neyða þig til að kjósa já. Ég vil bara að allir hugsi vel og taki meðvitaða ákvörðun núna í lok sumars. Ég er bara raunverulega stressaður um að við sem þjóð munum sjá eftir því að kíkja ekki í pakkann. Ég bið þig um að hugsa vel og vandlega yfir sumarið, hlusta á hjartað og engan annan og taktu ákvörðun sem þú munt ekki sjá eftir. Við erum með tækifæri núna sem er alls ekki víst að við munum nokkurntíman fá aftur. Núna er tíminn. Við getum svo alltaf sagt nei við samningnum ef hann er svo bara eitthvað drasl. Höfundur er forseti nemendafélags Borgarholtsskóla og meðstjórnandi ungliðahreyfingar Viðreisnar.
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar