Hvaða áhættu tekur Ísland ef við breytum engu? – Framtíðarsýn til ársins 2050 Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar 7. júlí 2026 11:02 Undanfarnar vikur hefur umræðan um þjóðaratkvæðagreiðsluna í ágúst að mestu snúist um þær áhættur sem sumir telja að felist í því að halda áfram viðræðum við Evrópusambandið. Fyrrverandi forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, og fleiri hafa lagt áherslu á fullveldi, valdaframsal, löggjafarvald og dómsvald. Það er eðlilegt að spurt sé, en það þarf að skoða fleiri hliðar og spyrja: Hvaða áhættu tekur Ísland ef við höldum áfram á sömu efnahagslegu og samfélagslegu braut og síðustu áratugi? Sú spurning snýst ekki síður um sjálfstæði Íslands, lýðræði, öryggi, samkeppnishæfni og lífskjör komandi kynslóða. Framtíðarsýn – hvernig viljum við sjá Ísland árið 2050? Enginn veit hvernig Ísland verður árið 2050. Enginn veit hvernig gervigreind mun umbreyta atvinnulífinu, hvernig alþjóðaviðskipti þróast eða hvaða náttúruhamfarir og öryggisáskoranir bíða okkar. En eitt vitum við. Þær ákvarðanir sem við tökum í dag munu hafa áhrif á líf barna okkar og barnabarna næstu 30 til 60 árin. Þess vegna eigum við að spyrja: Hvernig byggjum við upp Ísland sem verður sterkara, öruggara og samkeppnishæfara fyrir komandi kynslóðir? Þetta er stærsta og ábyrgðafyllsta verkefnið okkar. Framtíðin krefst nýrrar hugsunar og samstarfs Á næstu áratugum mun samkeppni þjóða í auknum mæli ráðast af því hvar vel menntað fólk kýs að búa, hvar nýsköpun verður til og hvar alþjóðleg fyrirtæki velja að fjárfesta. Í þeirri samkeppni skipta náttúruauðlindir miklu máli. En þær duga ekki einar og sér. Stöðugt efnahagsumhverfi, samkeppnishæfur fjármagnskostnaður, öflugt menntakerfi og traust alþjóðlegt samstarf verða sífellt mikilvægari. Hvora leiðinna eigum við að velja? Önnur er að halda áfram með það efnahagsumhverfi sem við þekkjum. Umhverfi sem um áratugaskeið hefur einkennst af háum vöxtum, endurteknum gengissveiflum, verðbólgu og meiri óvissu en hjá flestum nágrannaríkjum okkar. Hin leiðin er að kanna hvort Ísland geti samið sig inn í efnahagsumhverfi sem byggir á stöðugri gjaldmiðli, lægri fjármagnskostnaði, fjölbreyttari atvinnumöguleikum og sterkari samkeppnishæfni. Þjóðaratkvæðagreiðslan í ágúst ákveður ekki hvort Ísland gangi í Evrópusambandið. Hún ákveður aðeins hvort við eigum að fá að sjá samninginn áður en þjóðin tekur endanlega ákvörðun. Er það ekki eðlileg krafa í lýðræðisríki? Sjálfstæði er líka spurning um styrk Sjálfstæði felst ekki aðeins í því hver setur lögin. Það felst einnig í því hvort þjóð hafi burði til að tryggja íbúum sínum stöðugt efnahagslíf, öflugt atvinnulíf, örugg störf, sterka innviði og getu til að takast á við stór áföll. Við búum í heimi þar sem netárásir, stríð, farsóttir, truflanir á alþjóðaviðskiptum og loftslagsbreytingar geta haft gríðarleg áhrif á lítil ríki. Við búum jafnframt á eldfjallaeyju þar sem náttúruhamfarir minna okkur reglulega á að öryggi er ekki sjálfgefið. Við getum ekki komið í veg fyrir eldgos eða jarðskjálfta. En við getum byggt upp sterkara efnahagslegt bakland, aukið viðnámsþrótt samfélagsins og styrkt alþjóðlegt samstarf áður en áföll verða. Við tryggjum ekki eftir á. Gjaldmiðillinn hefur áhrif á daglegt líf Gjaldmiðill er ekki aðeins hagfræðilegt hugtak. Hann birtist í raun í afborgun húsnæðislánsins og í verðbólgunni sem rýrir kaupmáttinn. Í kostnaði fyrirtækja við að fjárfesta og fjölda nýrra starfa í takt við breytta heimsmynd. Hvort sparnaður heldur verðgildi sínu, m.a. lífeyrir og í því hvort ungt fólk sér framtíð sína á Íslandi. Þetta eru ekki kenningar. Öll íslensk heimili og fyrirtæki þekkja sögu undangenginna áratuga. Berum saman Möltu og Ísland Margir hafa bent á að ný ríki sem koma inn í ESB hafi náð að bæta stöðu sína verulega. Ísland hefur náð að bæta stöðu sína m.a. með EES samningi, en það vatnar undan honum og hann gefur okkur ekki fullt viðskiptafrelsi. En skoðum aðeins betur nýlegt raundæmi. Malta gekk í Evrópusambandið árið 2004 og tók upp evruna árið 2008. Í dag njóta heimili þar húsnæðislána með um 2% vöxtum. Fyrirtæki fjármagna sig almennt á um 3–4% vöxtum. Atvinnuleysi er meðal þess lægsta í Evrópu og landið hefur byggt upp fjölbreytt atvinnulíf sem laðar að sér alþjóðlega fjárfestingu. Á sama tíma hafa íslensk heimili og fyrirtæki búið við mun hærri fjármagnskostnað og meiri óvissu. Það sem gerir samanburðinn sérstaklega athyglisverðan er að Malta á ekki fiskimið, jarðhita, vatnsafl né aðrar þær náttúruauðlindir sem Ísland býr yfir. Ísland hefur því mun sterkari náttúrulegar forsendur til verðmætasköpunar. Spurningin er því ekki hvort við eigum auðlindir, heldur hvort við höfum skapað það efnahagsumhverfi sem gerir okkur kleift að nýta þær til fulls? Ef Malta hefur náð þessum árangri með mun færri náttúrulegum styrkleikum en Ísland, hvað gæti Ísland þá áorkað ef við sameinuðum auðlindir okkar, þekkingu og samkeppnishæfara efnahagsumhverfi? Framtíð íslenskrar tungu og menningar Framtíðarsýn Íslands snýst ekki aðeins um hagvöxt. Hún snýst einnig um það sem gerir okkur að sjálfstæðri þjóð. Íslenska tungan, bókmenntirnar, listirnar og menningararfurinn eru meðal okkar mikilvægustu auðlinda. Á tímum gervigreindar og vaxandi áhrifa ensku verður sífellt mikilvægara að fjárfesta í íslenskri máltækni, rannsóknum, þýðingum og menningarstarfi. Evrópusambandið hefur um árabil stutt smærri tungumál og menningu aðildarríkja með sérstökum áætlunum um rannsóknir, máltækni og styrkjum til listgreina og menningarstarfs. Það getur styrkt og opnað ný tækifæri fyrir okkar góða listafólk. Fyrir litla þjóð skapar slíkt samstarf meiri möguleika til á að við getum viðhaldið og eflt íslenska tungu. Framtíðarsýn fyrir Ísland árið 2050 hlýtur einnig að fela í sér að íslensk tunga verði áfram lifandi, öflug og taki þátt í stafrænni þróun, m.a. gervigreindarinnar. Hvað gerist ef við breytum engu? Við eigum líka að ræða þá áhættu. Ef við höldum áfram á sömu braut er líklegt að við búum áfram við efnahagsumhverfi þar sem fjármagn er dýrara og sveiflur meiri en hjá mörgum helstu samkeppnisþjóðum okkar. Á sama tíma mun samkeppni um fjárfestingar, nýsköpun og menntun harðna. Viljum við velja óbreytt efnahagsumhverfi? Eða eigum við ekki að lágmarki að kynna okkur hvort önnur leið geti skapað sterkari stöðu fyrir Ísland og sjálfstæði þjóðarinnar til framtíðar? Ábyrgð okkar er gagnvart komandi kynslóðum Núlifandi kynslóð Íslendinga ber ábyrgð á því að hugsa lengra en til næstu kosninga. Við eigum möguleika á að velja leið sem skapar meira öryggi fyrir börn okkar og barnabörn. Við eigum ekki að hafna tækifærum af ótta né samþykkja þau í blindni. Við eigum að afla upplýsinga með því að sjá samninginn. Þá getum við borið saman kosti og galla og í framhaldinu tökum við upplýsta ákvörðun. Þjóðaratkvæðagreiðslan í ágúst snýst ekki um að ganga í Evrópusambandið. Hún snýst um hvort við viljum fá allar staðreyndir á borðið áður en við tökum eina stærstu stefnumótandi ákvörðun sem Ísland stendur frammi fyrir á þessari öld. Við skulum ekki óttast breytingar. Þær verða, en styrkur okkar er að við veljum sjálf okkar leið til breytinga sem styrkja okkar stöðu í ótryggum heimi. Framtíðarsýn felst í því að þora og gefa sér tíma til að skoða alla valkosti, velja þá leið sem þjónar Íslandi best og skapa komandi kynslóðum meira öryggi, meiri hagsæld, öflugri menningu og sterkari stöðu í heimi sem verður allt öðruvísi árið 2050 en hann er í dag. Höfundur er viðskiptafræðingur með MS í stjórnun og stefnumótun – áhugamaður um framtíð og öryggi Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Þorvaldur Ingi Jónsson Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Sjá meira
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar