Harry Styles setti heimsmet Atli Ísleifsson skrifar 7. júlí 2026 06:59 Harry Styles á sviði fyrr á árinu. EPA Breski tónlistarmaðurinn Harry Styles skráði sig í Heimsmetabók Guinness um helgina þegar hann hélt sína tólftu uppseldu tónleika á Wembley-vellinum í London.
Um er að ræða lengstu uppseldu tónleikaröðina á enska þjóðarleikvanginum en fyrra met átti hljómsveitin Coldplay – tíu uppselda tónleika – sem slegið var 2025. Síðustu tónleikarnir í tónleikaröðinni fóru fram á laugardag þar sem hinn 32 ára Styles þakkaði meðal annars sérstaklega félögum sínum í sveitinni One Direction, þeirra á meðal hinum látna Liam Payne. „Ég hefði ekki staðið á þessu sviði ef ekki væri fyrir fjóra vini mína sem hafa verið risastór hluti af þessu ferðalagi,“ sagði Styles. „Ég vil þakka þeim Niall, Louis, Zayn og elsku vini mínum Liam fyrir þessi kvöld og allt það sem ég hef lært á þessum tíma.“ One Direction var stofnuð í raunveruleikaþáttunum X-Factor árið 2010 og lagði upp laupana árið 2016 þó að Zayn hafi sagt skilið við sveitina ári fyrr. Liam Payne lést árið 2024, þá 31 árs gamall. Á tónleikunum á laugardaginn birtist hin 35 ára systir Styles, Gemma, óvænt uppi á sviði þar sem hún hélt ræðu til heiðurs bróður sínum. „Ég er svo stoltur af þér. Ekki bara út af þessu hérna, heldur af þeim manni sem þú ert.“ Hún sagði jafnframt að magnað væri að fylgjast með því samfélagi sem hafi skapast meðal aðdáenda söngvarans. @loryversal gemma @ harrys last show in london tn #harrystyles #harry #wembley #togethertogethertour #wembleyn12 ♬ original sound - loryversal Fyrstu tónleikar Styles í London í tónleikaröðinni Together, Together fóru fram 12. júní og fóru þeir síðustu fram á laugardag þar sem voru saman komnir um 80 þúsund tónleikagestir. Upphaflega stóð til að halda sex tónleika en þeim fjölgaði í tólf vegna mikillar eftirspurnar. Tónleikaferðalagið heldur nú áfram til Brasilíu, Mexíkó, Bandaríkjanna og Ástralíu. Tónleikaferðalag Styles, Together, Together Tour, hófst í kjölfar útgáfu nýjustu plötu Styles, Kiss All the Time. Disco, Occasionally.
Tónlist Bretland England Hollywood Mest lesið Megas er látinn Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Harry Styles setti heimsmet Lífið Hvarf vegna athyglisbrests á hæsta stigi Tónlist Það allra besta að gráta í gufu Lífið Listabarn á leiðinni Lífið Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Lífið Fleiri fréttir Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Sjá meira