Hlín er nýja nían hjá Malmö í Svíþjóð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. júlí 2026 10:41 Íslenska landsliðskonan Hlín Eiríksdóttir er ánægð með að vera komin aftur í sænsku deildina. @malmo_ff Íslenska landsliðskonan Hlín Eiríksdóttir er komin aftur til Svíþjóðar en hún hefur samið við sænska úrvalsdeildarfélagið Malmö FF sem er í toppbaráttunni í sænsku deildinni.
Hlín kemur til Malmö frá enska félaginu Leicester City en hafði áður farið á láni til Fiorentina á Ítalíu. Hlín hóf atvinnumannaferil sinn með Piteå IF og sló þar í gegn. Hún gerði síðan mjög góða hluti hjá Kristianstad. Á fyrsta tímabilinu sínu hjá KDFF skoraði Hlín 11 mörk og á því seinna urðu þau 15, sem skilaði henni öðru sæti á markalistanum. Hlín spilar reglulega með íslenska landsliðinu en hún hefur spilað 58 A-landsleiki og skorað 8 mörk. Hlín gerir þriggja og hálfs árs samning við Malmö og mun spila í treyju númer 9. View this post on Instagram A post shared by Malmö FF (@malmo_ff) Hún mun gefa okkur annars konar verkfæri „Hlín er leikmaður sem við þekkjum vel frá tíma hennar í Svíþjóð og við höfum fylgst með henni bæði hjá Leicester og Fiorentina. Hún er kraftmikill leikmaður sem sameinar þunga, tækni og líkamlegan styrk á mjög góðan hátt. Hún er öflug á síðasta þriðjungi vallarins með skotum sínum bæði innan og utan vítateigs. Auk þess leggur hún mikið á sig og er gagnlegur liðsmaður,“ sagði Maxim Khalil, yfirmaður íþróttamála hjá Malmö. „Við erum ánægð með að hafa náð að semja við Hlín til lengri tíma. Hún mun gefa okkur annars konar verkfæri en við höfum í núverandi leikmannahópi, um leið og hún getur spilað alls staðar í fremstu víglínu,“ sagði Khalil. Mjög góð tilfinning að flytja aftur til Svíþjóðar „Það var of margt sem mælti með því að ég veldi Malmö FF til þess að ég gerði það ekki. Þetta er risastórt og flott félag með frábærar aðstæður og aðstöðu. Mér líkar vel við hvernig liðið spilar fótbolta og ég hef nokkuð góða yfirsýn eftir að hafa rætt við þjálfarana og séð nokkra leiki,“ sagði Hlín Eiríksdóttir í viðtali á heimasíðu Malmö. „Það er líka mjög góð tilfinning að flytja aftur til Svíþjóðar. Ég átti góðan tíma bæði hjá Piteå og Kristianstad og ég held að þessi deild henti mér vel. Ég get ekki alveg sett fingurinn á af hverju það er, en hún er erfið og það eru margir jafnir leikir, það líkar mér,“ sagði Hlín. „Sem leikmaður er ég sterk og hef mikinn kraft. Ég fer af hörku í öll einvígi. Ég er nokkuð góð ein á móti einum úti á kanti og á gott skot. Um leið finnst mér gaman að taka mikla ábyrgð. En ef ég ætti að velja eitt orð til að lýsa mér, þá er það kraftur,“ sagði Hlín. View this post on Instagram A post shared by Malmö FF (@malmo_ff)
Sænski boltinn Mest lesið Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Fótbolti Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Fleiri fréttir Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Sjá meira