„Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 1. júlí 2026 20:01 Olivia Wilde er loksins að tjá sig um Don't Worry Darling dramað. Gilbert Flores/Variety via Getty Images Leikkonan og leikstjórinn Olivia Wilde segir að fjölmargar lygasögur hafi farið á kreik við tökur á kvikmyndinni Don't Worry Darling sem kom út árið 2022. Hún hafi viljað verja sjálfa sig en segir að sér hafi verið alfarið bannað að tjá sig.
Olivia Wilde leikstýrði kvikmyndinni og fór sjálf með hlutverk ásamt poppstjörnunni Harry Styles og leikkonunni Florence Pugh. Á þeim tíma áttu Wilde og Styles í ástarsambandi og átti Pugh að hafa kvartað mikið yfir skapsveiflum Wilde ásamt því að gagnrýna hana fyrir að vera lítið á staðnum. Enginn úr leikarahópnum hefur þó nokkurn tíma staðfest sögusagnirnar en fjölmiðlar fjölluðu mikið um þetta við útgáfu myndarinnar. Fjörutíu manns úr tökuliðinu gáfu út yfirlýsingu á sínum tíma þar sem þau sögðu að allar ásakanir á hendur Oliviu Wilde væru ósannar og fáránlegar. View this post on Instagram A post shared by The Cut (@thecut) Wilde segir að hún hafi verið gerð að algjöru illmenni af almenningi og slúðurmiðlum og sjái mikið eftir því að hafa ekki tjáð sig. „Ég var aldrei með öskurkeppni á setti eins og var haldið fram. Ég var aldrei ekki til staðar á setti. Mig langaði að segja frá því að ekkert af þessu væru satt. Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð og fara bara og brosa í myndavélarnar við kynningu á kvikmyndinni. Ég hata að ég hafi fylgt því en það hefur kennt mér að ég mun aldrei fylgja því aftur,“ segir Wilde í viðtali við The Cut. Hér má sjá stiklu úr kvikmyndinni Don't Worry Darling: View this post on Instagram A post shared by Don't Worry Darling (@dontworrydarling) Hún fór sömuleiðis í viðtal hjá stjörnunni Alex Cooper sem heldur uppi hlaðvarpinu Call Her Daddy þar sem hún segir þetta tímabil hafa tekið mikið á sig. „Ég hef aldrei upplifað sjálfa mig jafn langt frá þeirri manneskju sem fólk var að tala um. Það var líka rosalega skrýtið að sjá algjöran uppspuna settan fram sem einhverja staðreynd. Mig langaði svo að segja að þetta væri ekki satt en fólk sagt mér að það myndi ekki hjálpa. Það tók mikið á og það var ergjandi að ég gat ekki varið sjálfa mig.“
Hollywood Ástin og lífið Bíó og sjónvarp Mest lesið Einn mánuður án áfengis breytti öllu Lífið Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Lífið Skemmtilega söguhornið: Hefði fólk skilið Óskar fyrir 100 árum síðan? Áskorun Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið 50+: Má maður fagna því þegar börnin flytja að heiman? Áskorun Eitt allra krúttlegasta mót ársins Lífið Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Lífið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Fleiri fréttir Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Sjá meira