Séreignarsjóðir skilað talsvert lakari ávöxtun þrátt fyrir meiri áhættu
Séreignarsjóðir hafa að jafnaði skilað talsvert lakari árlegri ávöxtun en samtryggingardeildir lífeyrissjóða síðasta aldarfjórðung, samkvæmt nýrri rannsókn, jafnvel þegar leiðrétt er fyrir áhættu í eignasafninu og hærri kostnaði. Umgjörðin í kringum séreignarsparnað, þar sem einstaklingar velja sjálfir þátttöku og fjárfestingarleiðir og hagnaðardrifin fjármálafyrirtæki gegna stóru hlutverki, er sögð hafa haft neikvæð áhrif á árangur kerfisins.