Virðing fyrir menntun leikskólakennara er virðing fyrir börnum Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir og Sara Margrét Ólafsdóttir skrifa 1. júlí 2026 12:32 Undanfarnar vikur hefur farið fram umræða um stöðu leikskólans, menntun leikskólakennara og framtíð fyrsta skólastigsins. Í þeirri umræðu hafa komið fram sjónarmið sem gefa til kynna að yngri börn kalli á minni menntun og að meginhlutverk leikskólans sé fyrst og fremst að sinna gæslu. Slík sjónarmið vekja áhyggjur, enda beina þau sjónum fyrst og fremst að réttindum foreldra og þörfum vinnumarkaðarins fremur en réttindum barna. Jafnframt fela þau í sér skref aftur á bak í þeirri þróun sem hefur átt sér stað í leikskólamálum á Íslandi undanfarna áratugi. Vert er að benda á að hvernig talað er um menntun leikskólakennara endurspeglar hvernig við metum bernskuna og rétt barna til menntunar. Leikskólinn er fyrsta skólastig íslenska menntakerfisins samkvæmt lögum. Þar hefst formleg menntun barna og lagður grunnur að námi, vellíðan, félagsfærni, málþroska, sjálfsmynd og þátttöku þeirra í samfélaginu. Leikskólakennarar hafa í gegnum nám sitt sérhæft sig í menntun ungra barna og öðlast þekkingu á börnum, bernsku og menntun, sem byggir á menntunarfræði, sálfræði, félagsfræði, heimspeki og siðfræði. Í náminu er áhersla á að skipuleggja nám í gegnum leik, styðja við málþroska og félagsþroska, vinna með fjölbreytta barnahópa og þróa eigið starf. Þessi þekking hefur aldrei verið mikilvægari en nú þegar barnahópar eru fjölbreyttari en áður, fleiri börn alast upp við fleiri en eitt tungumál, fleiri ung börn hefja leikskólagöngu og aukin áhersla er lögð á snemmtækan stuðning og inngildingu. Þetta kallar ekki á minni menntun heldur meiri sérþekkingu. Leikskólakennaranám er ekki einfaldari útgáfa af grunnskólakennaranámi. Leikskólakennarafræði er sérhæft nám fyrir menntun yngstu barnanna (1-6 ára), en kröfurnar um fagmennsku, ábyrgð og fræðilega dýpt eru sambærilegar. Þess vegna teljum við að leikskólakennaranám eigi áfram að vera fimm ára háskólanám til meistaragráðu, líkt og grunnskólakennaranám. Leikskólakennaranám á Íslandi hefur þróast mikið á síðustu árum og nýtur virðingar bæði hérlendis og erlendis. Mörg lönd horfa til Íslands þegar kemur að leikskólastarfi og menntun leikskólakennara. Fjölgun nemanda í leikskólakennarafræði hefur ekki haldist í hendur við fjölgun leikskólaplássa og því hefur verið ráðist í mikilvægar breytingar til að bregðast við því og styrkja leiðir inn í fagið, meðal annars með fagháskólanámi, raunfærnimati, menntunarfræði leikskóla á meistarastigi og launuðu starfsnámi. Þessi þróun hefur skilað árangri; umsóknir hafa verið stöðugar og útskriftir í takt við aðrar námsleiðir. Því er svarið við þeim áskorunum sem leikskólar standa frammi fyrir ekki að draga úr faglegum kröfum með því að stytta menntunina. Með minni menntunarkröfum er verið að draga úr mikilvægi leikskólastigsins og um leið starfsins sem leikskólakennarar sinna. Það getur haft öfug áhrif og leitt til flótta úr stéttinni. Í þessu samhengi vekja breytingar Reykjavíkurborgar á skipulagi leikskólamála áhyggjur. Að færa leikskóla frá skóla- og frístundasviði yfir á sérstakt svið þar sem áherslan virðist eiga að færast frá menntun og yfir í þjónustu og gæslu sendir ákveðin skilaboð um stöðu leikskólans í samfélaginu. Slíkar breytingar geta grafið undan þeirri faglegu sýn sem byggð hefur verið upp áratugum saman. Við þurfum því að spyrja okkur mikilvægrar spurningar: Hvað viljum við fyrir börnin okkar? Við teljum að flestir foreldrar vilji það besta fyrir börnin sín. Þeir vilja öruggt umhverfi, fagmennsku, hlýju, þekkingu og menntun. Þeir vilja að börnin þeirra fái tækifæri til að læra, þroskast, skapa, leika sér og tilheyra samfélagi þar sem þau eru virt sem einstaklingar. Við sem samfélag eigum að vera stolt af því sem við höfum byggt upp í íslenskum leikskólum og halda áfram að styrkja það. Þessi umræða snýst því ekki aðeins um lengd háskólanáms eða skipulag málaflokksins innan sveitarfélaga. Hún snýst um það hvernig samfélag við viljum byggja og hvaða gildi við viljum að liggi þar að baki. Virðing fyrir menntun leikskólakennara er virðing fyrir börnum. Hún felst í því að viðurkenna að fyrstu ár ævinnar skipta sköpum og að yngstu börnin eiga rétt á bestu mögulegri menntun og fagþekkingu. Þegar mikilvægi leikskólakennaramenntunar er dregið í efa er ekki aðeins grafið undan einni fagstétt, heldur einnig menntun yngstu barna samfélagsins. Höfundar starfa við rannsóknir og kennslu í leikskólakennarafræði við Háskóla Íslands og hafa tekið þátt í þróun námsins undanfarin ár. Höfundar eru dósentar í leikskólafræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Leikskólar Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Skoðun Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar