Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 29. júní 2026 10:21 Simon Peter Carman í haldi lögreglunnar. Ástralskur karlmaður hefur verið ákærður fyrir morð eftir að lík sautján ára stúlku fannst í ferðatösku í Tælandi. Hann er grunaður um að hafa ætlað að flýja land eftir morðið en hann neitar sök.
Í umfjöllun breska ríkisútvarpsins er haft eftir tælenskri lögreglu að lík hinnar sautján ára gömlu Tunchanok Donhomla hafi fundist í ferðatösku í strandborginni Pattaya, snemma á laugardagsmorgun. Maðurinn Simon Peter Carman var handtekinn á alþjóðaflugvellinum í Bangkok og segir lögregla hann hafa ætlað að flýja land. Fjölskylda stúlkunnar hafi síðdegis á föstudag haft samband við lögreglu sem hafi þá lýst eftir henni. Lögregla segist í yfirlýsingu hafa rakið ferðir hennar í eftirlitsmyndavélum borgarinnar. Carman hafi sést fara inn í íbúð með Donholma síðdegis á fimmtudag. Síðar um kvöldið hafi hann sést ganga út úr íbúðinni með stóra ferðatösku. Hann hafi því næst sést keyra með töskuna á mótorhjóli og í átt að lestarstöð. Carman hafi verið handtekinn um hádegisbil á laugardag. Lík stúlkunnar hafi fundist í ferðatöskunni um fimmtán mínútum síðar. Breska ríkisútvarpið hefur eftir Carman að hann neiti sök. Hann beri fyrir sig sjálfsvörn. Hann er sagður hafa sagt í skýrslutöku hjá lögreglu að hann hafi samþykkt að greiða Donholma 1000 baht, því sem nemur 3800 krónur fyrir kynlíf. Þau hafi rifist í íbúðinni og hann hafi þá boðið henni 500 baht, tæplega 1900 krónur. Hann hafi þá einnig fullyrt að stúlkan hafi horfið úr herberginu á meðan hann svaf. Tælenska lögreglan segir að rispur hafi verið á Carman, líkt og eftir neglur. Það sé til vitnis um að til átaka hafi komið. Carman hafi sagt að áverkarnir væru eftir kónguló. Þá ræða erlendir miðlar við fjölskyldu Donhomla. Hún var eina barn foreldra sinna og bjó hjá föður og stjúpmóður sinni í Kalasin héraði í Tælandi, um 480 kílómetra norðaustur af Pattaya. Fjölskylda hennar segir hana hafa sagt þeim að hún ætlaði sér í frí með vini sínum og hafi komið til Pattaya þann 16. júní síðastliðinn. Verði Carman fundinn sekur vegna morðsins gæti hann átt yfir höfði sér dauðarefsingu samkvæmt tælenskum lögum.
Taíland Ástralía Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Sjá meira