Obb obb obb Bogi minn 698.500 kr. fyrir að breyta einum litlum flugmiða Kristján Logason skrifar 29. júní 2026 09:31 Obb obb obb Bogi minn, nú er illt í efni. 698.500 kr. fyrir að breyta einum litlum flugmiða! Ég veit að „shit happens“ er máltæki þarna hinum megin hafs, í hinu vestra, en ég verð að segja að þetta er nú meira eins og ill iðrakveisa eða svæsin salmonellusýking, svo slæmt er það, og vart til nokkurt íslenskt máltæki sem nær yfir svona hegðun. Einhver hefði sjálfsagt kallað þetta græðgi, en þetta er komið svo langt fram yfir það að teljast græðgi að íslenskir stórútgerðarmenn teljast nú orðið hófsamir hásetar í okurríkinu Íslandi. Ég veit, Bogi minn, að það er farið að hitna vel undir þér og það eru allir vondir við þig. Hluthafar eru orðnir svo stressaðir að þeir eru á nálapúða. Flugmenn eru frekir og vilja fá að hafa sitt sumarfrí í friði. Friði sem ekki er að finna í Mið-Austurlöndum sökum trúðsláta að vestan sem orsaka hækkun á olíuverði. Hætta er á að flugvélarnar í flotanum fari að detta í sundur því flugvirkjarnir vilja ekki skrúfa þær saman nema að undangengnum samningi sem þú vilt ekki gera við þá. Ofan á allt er almenningsálitið farið að hrapa meira en fylgi Trumps. Ég geri mér grein fyrir því Bogi minn að eitthvað þarf að gera til að bjarga skútunni sem flýtur stjórnlaus með skipstjórann einan um borð því áhöfnin hefur gert uppreisn. En er það ekki heldur mikil bjartsýni að ætlast til þess að ein lítil fjölskylda á leið í sumarfrí bjargi öllu því sem bjarga þarf og búið er að klúðra svo rækilega að ríkisstjórnin þvær hendur sínar af óskabarninu sjálfu? Það að ætla sér að innheimta 698.500 kr. fyrir að breyta einum litlum flugmiða er ekki gáfulegur dónaskapur og næsta víst að þetta verður til þess að þessi fjölskylda, sem hefur flogið oftar með Icelandair milli þeirra systra Ameríku og Evrópu en ég milli Akureyrar og Reykjavíkur, muni héðan í frá íhuga vandlega hvort það sé þess virði að fljúga til Íslands framar. Það er allavega mun líklegra að þau sleppi ferð til Íslands frekar en að sleppa jólagjöfum barnanna svo komast megi í flug með Icelandair. Nú þegar ferðaþjónustan má við litlu og flugheimurinn er að breytast, þá sætir svona ákvörðun mikilli furðu. Hvernig má það vera að hægt sé að innheimta $5500 fyrir breytingu á flugi. $4500 fyrir útgáfu á nýjum flugmiða og $250 á mann fyrir breytingar á flugmiðum sem búið er að borga og rukka aukalega fyrir.Framtíð millilendingar á Íslandi er í óvissu með tilkomu nýrra langdrægra flugvéla og því mikilvægt, Bogi minn, að vel sé haldið á spöðunum svo þú þurfir ekki að sjá um að snúa þeim einn og yfirgefinn í tilraun til að fá félagið til að svífa inn í nýja tíma. Ég veit ekki alveg, Bogi minn, hvernig þú ætlar að bæta þann skaða sem er skeður með svona framkomu því þetta er ekki „shit happens“-stund heldur rennandi ræpa sem er í gangi og það þarf eitthvað annað en tálgaðan trétappa til að stöðva þennan leka. Ung fjölskylda innan við 50 ára með góð tengsl við Ísland er fjárfesting til framtíðar en ekki skyndibiti sem skapar steinsmugu sem kaffærir öllu því milljónafjárframlagi sem ríkisstjórnin ákvað að moka í að auglýsa ferðaþjónustuna. En kannski hlustaðir þú of mikið á Sykurmolana og hefur tekið upp slagorðið “Heimsyfirráð eða dauði.” Ég er ekki svo viss um að hægfara andlát sé neitt sérstaklega spennandi og held að skemmtilegra sé að lifa og deyja hratt. Ég er líka viss um að starfsfólk Icelandair vilji að fyrirtækið lifi og lendi ekki í Play/WOW-pókernum. Hins vegar, Bogi minn, verð ég að segja að svona framkoma við fólk er ekki vel til þess fallin að blása lífi í loftlausa blöðru svo hún svífi um himinhvolfið. Hér held ég að þú sért að gera mikil mistök og þurfir að hugsa þig aðeins um og endurskoða taktíkina því þetta veit ekki á gott. Ferðaþjónustufyrirtæki sem gerir allt til þess að fólk ferðist ekki með því telst ekki vel rekið fyrirtæki og ef þú ætlar ekki að fljúga hratt úr forstjórastólnum þá verður þú að bregðast við og spenna beltið því fjárfestar eru búnir að taka fram fallhlífarnar og vita sem er að — svona gerir maður ekki. Höfundur ákvað að yfirgefa ferðaþjónustuna í fallhlíf. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Skoðun Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar