Sport

Ætla ekki að heiðra O.J. Simpson á nýja leik­vanginum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
O.J. Simpson sést hér árið 1980 með foreldrum sínum þegar hann var sá fyrsti sem Buffalo Bill heiðraði með því að setja upp heiðursvegginn á leikvanginum.
O.J. Simpson sést hér árið 1980 með foreldrum sínum þegar hann var sá fyrsti sem Buffalo Bill heiðraði með því að setja upp heiðursvegginn á leikvanginum. Getty/Ross Lewis

O.J. Simpson verður ekki heiðraður meðal annarra goðsagna Buffalo Bills á nýja Highmark-leikvangi Buffalo Bills-liðsins.

„Við höfum tekið þá ákvörðun innan félagsins að hann eigi ekki heima á nýja leikvanginum okkar og í fjölskylduhringnum,“ sagði Pete Guelli, forseti viðskiptasviðs Bills, í yfirlýsingu.

Bills mun heiðra goðsagnir á fjölskylduhringssvæði liðsins fyrir utan nýja leikvanginn, svæði sem mun sýna sögu liðsins og Vestur-New York. Aðrir sem voru á heiðursvegg liðsins verða heiðraðir á svæðinu og er Simpson líklega sá eini sem verður það ekki. Þetta verður svæði sem Bills hvetur til samkomuhalds árið um kring og þar verða þrjár vísundastyttur liðsins.

Svo nýlega sem í vor hafði Bills verið að íhuga hvort Simpson yrði með á svæðinu og hönnunarteymið var að undirbúa sig fyrir báða möguleika.

Nafn Simpsons var sýnilegt á gamla leikvangi Bills sem hluti af heiðursveggnum sem var settur á laggirnar árið 1980. Hann var fyrsti meðlimurinn sem var tekinn inn. Nafnið hékk uppi í mörg ár þrátt fyrir opinberar umræður.

Simpson var grunaður um hnífstungumorðin á Nicole Brown Simpson og Ronald Goldman árið 1994. Hann var á endanum ákærður og réttarhöldin yfir honum árið 1995 vöktu heimsathygli. Simpson var sýknaður af öllum ákærum en dæmdur bótaskyldur fyrir manndráp af gáleysi í einkamáli tveimur árum síðar. Honum var gert að greiða 33,5 milljónir dala í skaðabætur til fjölskyldna Brown og Goldman. Simpson hélt fram sakleysi sínu.

Bills valdi Simpson með fyrsta valrétti í nýliðavali NFL árið 1969 og hann lék níu tímabil (1969–77) með félaginu. Hann varð fyrsti hlauparinn í sögu NFL til að ná tvö þúsund hlaupajördum á einu tímabili, þegar hann hljóp 2.003 jarda árið 1973, og var fimm sinnum valinn í úrvalslið deildarinnar.

Simpson lést úr krabbameini í apríl 2024. Hann var 76 ára. Þegar hann lést tók Bills skref í átt að því að fjarlægja sig frá honum með því að gefa ekki út yfirlýsingu eða minnast andláts hans.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×