„Skiptir engu máli hvort þetta sé léttir fyrir mig“ Gunnar Egill Daníelsson skrifar 28. júní 2026 20:05 Jón Þór Hauksson tók við Stjörnunni á dögunum en liðið vann gríðarlega mikilvægan sigur á KA í dag. vísir / jón gautur Jón Þór Hauksson, þjálfari Stjörnunnar, var að vonum hæstánægður með 3-1 sigur sinna manna á KA í 12. umferð Bestu deildar karla í fótbolta á Samsungvellinum í Garðabæ í kvöld. „
Þetta var virkilega sterkur sigur hjá okkur. Mér fannst við frábærir í fyrri hálfleik, byrjuðum leikinn virkilega sterkt og ég hefði alveg viljað fá betri stöðu inn í hálfleikinn. Svo ná þeir að koma með kraft og mikla orku inn í seinni hálfleikinn og ná að minnka muninn. Það var mikið högg fyrir okkur og tók okkur, eðlilega þar sem það er langt síðan liðið vann síðast leik, langan tíma að komast yfir það. Það var mikil taugaveiklun en mér fannst við samt sem áður glíma vel við það. Þegar við jöfnuðum okkur á því byrjuðum við aftur að spila boltanum vel á milli okkar og komast í virkilega góðar stöður sem skilaði okkur leiftrandi sóknarleik í fyrri hálfleik. Það var vel gert hjá strákunum að klára þetta svo í lokin,“ sagði Jón Þór í samtali við Sýn Sport eftir leik. Léttir fyrir allt umhverfið Hann tók nýverið við stjórnartaumunum hjá Stjörnunni og var þetta fyrsti sigur liðsins undir stjórn Jóns Þórs í þriðja leiknum. Síðasti sigur Stjörnunnar hafði komið fyrir tæpum mánuði síðan, þegar Jökull I. Elísabetarson var enn þjálfari liðsins. „Ég held að þetta sé léttir fyrir allt umhverfið hérna. Það skiptir engu máli hvort þetta sé léttir fyrir mig eða ekki. Það er aðallega það að þetta sé gríðarlegur léttir fyrir allt umhverfið. Sigrarnir næra og það er langt síðan sá síðasti kom þannig að þetta var mjög mikilvægt,“ sagði hann um kærkominn sigurinn. Einungis einn leikur Jón Þór veit sem er að þrátt fyrir sigur kvöldsins og bætta stöðu í deildinni sé björninn síður en svo unninn. Honum líst hins vegar vel á framhaldið og treystir á að sínir menn haldi áfram að leggja hart að sér til þess að komast á gott ról. „Menn þurfa að leggja virkilega hart að sér til þess að halda áfram. Þetta er bara einn leikur og við viljum komast á sigurbraut þannig að menn þurfa að vinna virkilega fyrir því eins og þeir hafa gert. Menn þurfa að halda áfram að leggja hart að sér til þess að snúa þessu við. Það snýst um að komast á sigurbraut, komast á rétt ról. Það er ekki nóg að vinna bara einn leik til þess að gera það þannig að það er mikil vinna sem er fram undan,“ sagði Jón Þór Hauksson að endingu.
Íslenski boltinn Besta deild karla Mest lesið Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino Fótbolti Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti Lygilegur uppgangur: „Besta botnlangaaðgerð í sögunni“ Fótbolti Verðlauna stuðningsmenn sína fyrir að nota ekki símana Fótbolti Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Körfubolti Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Körfubolti Vann erfitt utanvegahlaup þrátt fyrir brákað rifbein Sport FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin Íslenski boltinn Stórleiknum frestað vegna mótmælanna Fótbolti Fleiri fréttir KR - Breiðablik | Slær Aron markametið? ÍA - Keflavík | Geta náð besta árangri í mörg ár FH - Þór | Ævintýri Þórsara fullkomnað? KA - ÍBV | Taka gestirnir KA-menn með sér niður? Stjarnan - Valur | Kveðjustund í Garðabæ Leikur FH og Þórs færður vegna frosts Sjáðu fimmu Hrafnhildar Ásu í lokaumferðinni FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin „Þetta er bara ólýsanlegt” „Fólk var alveg að efast en ég vissi alltaf að þetta myndi detta” Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Bríet Fjóla: „Sjálfstraustið er komið til baka“ Uppgjörið: Þróttur-Grind/Njarðv. 3-2 | Markaveisla í seinni Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan 2-0 | Sannfærandi sigur tryggði ÍBV bronsið Uppgjörið: Breiðablik-FH 6-2 | Ása með fimm mörk í meistarasýningu Blika Matthías í stað Viktors við hlið Sölva „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Svona missti Aron markið sögulega Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Framlengir í Vesturbænum „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Sjá meira