Ný lið bætast við Stefán Árni Pálsson skrifar 28. júní 2026 22:30 Ægir Þór Steinarsson leggur hér boltann ofan í leik með Stjörnunni. Sindramenn komust upp í Bónus-deild karla og þeir hafa til að mynda aldrei áður spilað í þeirra efstu. vísir/Diego Undirbúningur fyrir nýtt körfuboltatímabil er kominn á fullt hjá Körfuknattleikssambandi Íslands, en skráning liða í deildarkeppni vetrarins er langt komin. Samkvæmt upplýsingum frá sambandinu verður metþátttaka í 1. deild kvenna og nokkur ný félög bætast við í neðri deildum karla. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sambandinu
Alls verða 12 lið í 1. deild kvenna á komandi tímabili, sem er metfjöldi. Þar af eru níu aðallið en þrjú B- eða U-lið taka einnig þátt. Breiðablik og Skallagrímur snúa aftur í deildina eftir nokkurra ára fjarveru og Þór Þorlákshöfn mætir einnig til leiks eftir að samstarfi félagsins við Hamar í meistaraflokki kvenna lauk. Slitin á samstarfi Hamars og Þórs Þorlákshafnar hafa einnig áhrif á efstu deild, en í kjölfarið tekur Ármann sæti þeirra í Bónusdeild kvenna og heldur þar með sæti sínu í deildinni frá síðasta tímabili. Í 1. deild karla tekur Hamar við sæti Fylkis. Fylkismenn ákváðu að færa lið sitt niður í 2. deild eftir eins árs veru í 1. deild og því heldur Hamar sæti sínu þrátt fyrir að hafa endað í neðsta sæti deildarinnar á síðasta keppnistímabili. Áfram verða 18 lið í 2. deild karla og þar vekur athygli að nokkur ný félög hafa skráð sig til leiks. Þar má nefna Augnablik, Íþróttafélag Breiðholts, Mána, Reyni Sandgerði, Smára Varmahlíð og Víði í Garði. Sum þessara félaga eru að taka þátt í deildarkeppni á ný eftir langt hlé en önnur stíga sín fyrstu skref í deildarkerfi KKÍ.
Körfubolti Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 72-92| Stjarnan heldur áfram að heilla Haukar völtuðu yfir KR og Ármann hrekkti meistarana Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Hætti við Lakers sökum hroka Kobe „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Bræður bættu stigamet pabba þeirra Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Uppgjörið: Álftanes-Keflavík 130-110 | Sóknarbolti á föstudagskvöldi Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Uppgjörið: Sindri-Tindastóll 71-78 | Frábær vörn Stólanna í lokin Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Einn nýliði í landsliðshópnum Baulað á LeBron og félaga en snéru taflinu við Starfsfólki og þjálfurum Knicks finnst það vera svikið Trump sakar LeBron um að sýna Bandaríkjunum vanvirðingu „Kærkominn“ og „lífsnauðsynlegur“ sigur „Ég hef áhyggjur en ég er ekki áhyggjufullur“ Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Sjá meira