Formúla 1

Russell náði ráspólnum á um­deildan hátt

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
George Russell náði bestum árangri í tímatökunni fyrir austurríska kappaksturinn.
George Russell náði bestum árangri í tímatökunni fyrir austurríska kappaksturinn. getty/Jakub Porzycki

George Russell, ökumaður Mercedes, verður á ráspól í austurríska kappakstrinum á morgun. Mikil dramatík var undir lok tímatökunnar í dag.

Russell náði ráspólnum af Charles Leclerc á Ferrari á síðasta hringnum.

Fjórfaldi heimsmeistarinn Max Verstappen hafði lent í árekstri á næstsíðasta horninu. Ferrari-ökumennirnir Leclerc og Lewis Hamilton voru búnir að fara framhjá því en Russell og samherji hans hjá Mercedes, Kimi Antonelli, áttu það eftir.

Russell vildi meina að hann hefði hægt nægilega mikið á sér þegar hann keyrði framhjá bíl Verstappens og taldi að aðeins einn gulur fáni hefði farið á loft en ekki tveir eins og venjan er í atvikum sem þessum.

Russell stakk sér fram fyrir Leclerc en aðeins 0,236 sekúndum munaði á þeim. Hamilton varð þriðji og Antonelli fjórði. Varstappen kom svo þar á eftir.

Bein útsending frá austurríska kappakstrinum hefst klukkan 12:30 á Sýn Sport Viaplay á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×