Foreldrar standi eftir „einir, örmagna og án stuðnings“ Lovísa Arnardóttir skrifar 27. júní 2026 10:31 Ingibjörg er komin með nóg af innantómum loforðum og kallar eftir viðbrögðum, úrræðum og framkvæmdum. Aðsend og Vísir/Anton Brink Ingibjörg Einarsdóttir, móðir eins drengsins sem fór til Suður-Afríku í meðferð, segist ekki hafa þurft að lesa nýja skýrslu Ríkisendurskoðunar um innleiðingu farsældarlaganna til að vita að barnaverndarkerfið sé að bregðast þeim börnum sem þurfa á mestri aðstoð að halda. Hún segir tíma til að framkvæma frekar en að „skrifa falleg lög“.
Skýrslan kom út í júní en þar kom fram að Ríkisendurskoðun telur innleiðingu farsældarlaga um samþættingu þjónustu við börn ekki hafa verið nægilega vel undirbúna og að hópar barna með fjölþættan og vímuefnavanda skorti enn þjónustu því meiri áhersla hafi verið lögð á samvinnu en að bæta og fjölga úrræðum. „Ég hef upplifað það sjálf sem foreldri. Nú hefur Ríkisendurskoðun staðfest það sem foreldrar hafa sagt árum saman,“ segir Ingibjörg í aðsendri grein á Vísi í gærkvöldi. Ingibjörg segir að þegar farsældarlögin hafi verið kynnt fyrst árið 2021 hafi þau átt að vera tímamót í þjónustu við börn. „Markmiðið var göfugt: að tryggja að börn og foreldrar fengju samþætta þjónustu við hæfi, án hindrana. Fáir myndu deila um mikilvægi þess markmiðs,“ segir Ingibjörg. Í dag, fjórum árum síðar, hafi Ríkisendurskoðun tekið út innleiðinguna og niðurstaðan sé sláandi. „Þótt samvinna milli kerfa hafi aukist og nýtt verklag verið innleitt telur Ríkisendurskoðun ekki að forsendur séu til staðar til að ná meginmarkmiði laganna. Fyrir foreldra barna sem þurfa mikla þjónustu kemur þetta ekki á óvart,“ segir hún og að foreldrar barna með geðrænan vanda, taugaþroskaraskanir, fötlun eða vímuefnavanda hafi árum saman setið fund eftir fund með sérfræðingum. Börnin bíði á meðan kerfið talar saman Þeir hafi fengið málstjóra, stuðningsteymi og þjónustuáætlanir. „En á meðan hafa börnin beðið. Beðið eftir greiningu. Beðið eftir meðferð. Beðið eftir úrræðum sem annaðhvort eru ekki til eða eru óaðgengileg vegna endalausra biðlista. Skýrsla Ríkisendurskoðunar staðfestir þessa reynslu. Hún bendir á að farsældarlögin séu fyrst og fremst samvinnulög. Þau bæta samskipti milli kerfa en fjölga hvorki sálfræðingum, stytta biðlista né skapa ný meðferðarúrræði. Þegar þjónustan er ekki til staðar verður samþætting hennar innantóm,“ segir Ingibjörg. Hún segir það vekja sérstaka athygli að Ríkisendurskoðun telji stöðu þeirra barna sem mestan stuðning þurfa óviðunandi. Það séu börn með fjölþættan vanda, börn með vímuefnavanda, fósturbörn og fötluð börn. „Með öðrum orðum: þau börn sem síst mega við því að falla á milli kerfa,“ segir Ingibjörg. Hún segir þó alvarlegustu niðurstöðu skýrslu Ríkisendurskoðunar að þó svo að frá innleiðingu hafi ekki enn verið skilgreindir mælikvarðar sem sýna hvort lögin hafi skilað þeim árangri sem lofað var. „Eftir fjögur ár getum við því ekki einu sinni svarað því með vissu hvort farsæld barna hafi aukist vegna laganna.“ Sjá einnig: Á leið til Suður-Afríku með syni sína í meðferð vegna úrræðaleysis Ingibjörg segir hugmyndafræði laganna góða og flestir styðji hana sem starfi með börnum en hún sé í dag lítið annað en „rómantísk saga á blaði“ „… falleg í orði en fjarri raunveruleika þeirra fjölskyldna sem berjast á hverjum degi,“ segir hún og að það sé ekki bara þreytt, heldur þjóð sem vilji kalla sig siðmenntaða til skammar. Innistæðulausar yfirlýsingar „Á meðan fólk safnast saman til að mótmæla velferð annarra barna eru börnin okkar bókstaflega að deyja. Samt virðist enginn rísa upp og mótmæla því. Í mínum huga er það tvöfalt siðferði,“ segir Ingibjörg og gagnrýnir „innistæðulausar yfirlýsingar“ stjórnvalda um börn með fjölþættan vanda. Greint var frá því í vikunni að stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga telji ríkið brjóta samkomulag um börn með fjölþættan vanda. „Við virðumst vera með allt í ólestri þegar kemur að þjónustu við börn. Þjónusta við fötluð börn er ófullnægjandi. Börn með ýmsa fæðingargalla falla á milli skips og bryggju. Geðheilbrigðiskerfið nær aðeins til lítils hluta þeirra barna sem þurfa á þjónustu að halda. Yfir 650 börn bíða eftir einhverfugreiningu og um 2500 börn eftir öðrum greiningum hjá Geðheilsumiðstöð barna. Fíknimeðferðir fyrir ungmenni eru of víða orðnar dýrt leikrit sem skilar litlum sem engum árangri. Og listinn heldur áfram,“ segir Ingibjörg og að reynslan sýni að hvorki ríki né sveitarfélag sé til staðar. „Þvert á móti er upplifunin sú að í stað hjálpar sé kastað steinum í mann á meðan maður reynir af öllum mætti að bjarga lífi barnsins síns. Þrátt fyrir að lög kveði skýrt á um skyldu ríkis og sveitarfélaga til að veita þessa þjónustu virðist allt gert eins erfitt og mögulegt er. Foreldrar sem eru að berjast fyrir lífi barna sinna fá ekki aðeins litla sem enga aðstoð heldur standa oft eftir einir, örmagna og án þess stuðnings sem þeir eiga rétt á. Þegar maður svo missir heilsuna sjálfur vegna álags fær maður heldur enga hjálp til að rísa á fætur aftur,“ segir Ingibjörg og að reynslan sýni að það sé löngu kominn tími til að framkvæma frekar en að „skrifa falleg lög“. „Ekki á morgun. Ekki á næsta kjörtímabili. Heldur strax í dag,“ segir Ingibjörg.
Meðferðarheimili Börn og uppeldi Heilbrigðismál Fíkn Barnavernd Ríkisendurskoðun Suður-Afríka Sveitarstjórnarmál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Erlent Tókst á við umdeilda rabbínann: „Þú ert hættulegur maður“ Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Steingrímur segir nei vegna reynslu af fyrri aðildarviðræðum Innlent Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Erlent Rafflugvél sem gæti hentað Íslandi flýgur í fyrsta sinn Innlent Farage sigraði en Ruslatunnufés lávarður hlaut fjórðung atkvæða Erlent Vara við að erlendir aðilar gætu náð yfirráðum yfir íslenskum sjávarútvegi Innlent Mangione sagður ætla að játa Erlent Forskot Já-hliðarinnar mælist minna Innlent Fleiri fréttir Tilkynnt um alblóðugan mann á gangi í miðborginni Vara við að erlendir aðilar gætu náð yfirráðum yfir íslenskum sjávarútvegi Steingrímur segir nei vegna reynslu af fyrri aðildarviðræðum Rafflugvél sem gæti hentað Íslandi flýgur í fyrsta sinn Ökumenn beðnir um að sýna aðgát vegna fýlsunga Frá hrifningu til vonbrigða: Svona upplifðu borgarbúar almyrkvann Rafmagnslaust í Mosfellsbæ og Grafarvogi Sé verið að senda röng skilaboð til „kaldrifjaðra morðingja“ Tókst á við umdeilda rabbínann: „Þú ert hættulegur maður“ Forskot Já-hliðarinnar mælist minna ESB-málin í brennidepli og uppgjör eftir almyrkvann Einn handtekinn vegna gruns um líkamsárás og hótanir „Ég get ekki orða bundist“ Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Bein útsending: Málstofa og sýning um íslensk námsgögn Umferð um Flókalund 430 prósentum meiri en vanalega Eigendur Santé ákærðir fyrir vínsölu og peningaþvætti Allir í skýjunum með almyrkvann: Himnanir opnuðust á hárréttum tíma Greiddu atkvæði gegn ráðningu nýs bæjarstjóra Fjallabyggðar Gott að vera temmilega tortrygginn Sjá-liðar þekkjast boðið sem Þorgerður afþakkaði Óraði ekki fyrir að ákvæðinu yrði beitt til að sleppa morðingja Eftirköst almyrkvans og Rauðagerðismorðinginn laus úr haldi Fluttu veikan kajak-ferðalang Sólmyrkvaröðin á Keflavíkurflugvelli lengri en elstu menn muna Alin upp við að skrifa frekar skilaboð en að hringja „Þú færð mig ekki til að segja já við þessu“ Telur mikilvægi Viðreisnar aukast ef viðræðum verður hafnað Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Sjá meira