Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Lovísa Arnardóttir skrifar 27. júní 2026 08:32 Unglingsstrák var bjargað úr rústunum um tveimur dögum eftir skjálftanna. Vísir/AP Ástandið hefur versnað með hverri klukkustund sem líður í Venesúela þar sem fólk grefur í rústum þremur dögum eftir að tveir jarðskjálftar, 7,2 og 7,5 að stærð, riðu yfir með skömmu millibili. Sérfræðingar segja lykilatriði að ná fólki út í dag.
Hjálparstofnanir telja fyrstu 48 til 72 klukkustundirnar vera mikilvægan tímaramma til að ná fólki lifandi úr rústunum, þó að það geti lengst ef það hefur aðgang að mat og vatni. Dagurinn í dag er „örlagaríkur“ fyrir leit og björgun, sagði Tom Fletcher, yfirmaður mannúðarmála hjá Sameinuðu þjóðunum, í viðtali við BBC. Hann sagði björgunarfólk „knúið áfram mínútu fyrir mínútu, klukkustund fyrir klukkustund, af hljóðum frá eftirlifendum undir rústunum.“ „Það versta er þegar þessar raddir þagna,“ bætti hann við. Í frétt AP segir að yfirvöld í Venesúela hafi tilkynnt í gær að þau myndu loka fyrir aðgang að La Guaira, þar sem upptök skjálftanna voru, vegna þess að ringulreið og umferð hafi verið farin að hindra leitarstarf. Í fréttinni kemur fram að nú þurfi allir sem vilji komast inn í borgina að sækja um leyfi en embættismenn gáfu engar upplýsingar um hverjir fengju slíkt leyfi. Eyðileggingin og mannfallið er gífurlegt. Vísir/AP Íbúar hafa kvartað undan skorti á björgunarsveitum og hafa tekið leit víða í sínar eigin hendur. Mannfall er gífurlegt og hefur verið greint frá í það minnsta 920 látnum og er um 51 þúsund manns talið saknað en nákvæmur fjöldi liggur þó ekki fyrir. Starfandi forseti Venesúela, Delcy Rodríguez, sagði í nýjustu uppfærslu sinni á föstudag að talan væri 172 en aðrir segja hana líklega mun hærri. Estamos acompañando a las familias que por los riesgos y daños ocasionados por los terremotos, aún no pueden regresar a sus casas.Hemos dispuesto refugios temporales y toda la atención integral necesaria para proteger a cada familia. pic.twitter.com/aJXdCBiE8P— Delcy Rodríguez (@delcyrodriguezv) June 27, 2026 Í frétt BBC segir að á vefsíðu um týnt fólk sem rekin er af almennum borgurum sé talan einnig sögð vera í tugum þúsunda, en þar er greint frá því að fjölskyldumeðlimir hafi ekki náð sambandi við yfir 54.000 manns. Á síðunni kemur einnig fram að 12.215 manns hafi fundist, en ekki er gefið upp í hvaða ástandi þeir fundust. Fjöldi slasaðra var yfir 3.300 um miðjan föstudag og yfirvöld sögðust hafa bjargað 243. Í frétt AP segir að björgunarsveitir á vegum hins opinbera hafi dreift mat og vatni til eftirlifenda í La Guaira og starfandi forseti, Delcy Rodríguez, sagði að ríkisstjórn hennar væri að koma af stað fullum viðbrögðum á þessum „mikilvægu klukkustundum til að bjarga fólki á lífi“. Mikill fjöldi er talinn látinn og er enn verið að leita að fólki. Vísir/AP Hún fagnaði komu alþjóðlegra björgunarsveita og mannúðaraðstoðar. Hún sagði að La Guaira hefði verið sett undir herstjórn og að meiri hjálp væri á leiðinni, jafnvel þótt íbúar segðu að það væri aðeins brot af því sem þeir þyrftu. Í fréttinni kemur einnig fram að hamfarirnar séu gríðarleg áskorun fyrir Rodríguez, fyrrverandi varaforseta sem tók við embætti í janúar eftir að Bandaríkin handtóku og steyptu þáverandi forseta, Nicolás Maduro, af stóli. Venesúela hefur staðið frammi fyrir efnahagslegri upplausn í meira en áratug og margir hafna lögmæti þeirrar stjórnmálahreyfingar sem Rodríguez er fulltrúi fyrir. Alþjóðafólksflutningastofnunin, IOM, hefur sagt að hún telji að allt að 6,76 milljónir manna gætu orðið fyrir áhrifum, þar af um tvær milljónir í Caracas einni. Eyðileggingin magnaðist vegna þess hve hratt grunnir skjálftar fylgdu hver öðrum, sögðu sérfræðingar. Haft er eftir Loyce Pace, svæðisstjóra Alþjóða Rauða krossins fyrir Ameríku, í frétt AP að „fólk sé enn skelfingu lostið við að fara aftur inn í það sem voru heimili þeirra.“ Yfirvöld í Venesúela sögðu á föstudag að 861 sjálfboðaliði frá Mexíkó, Bandaríkjunum, El Salvador, Sviss, Kólumbíu og víðar væri í landinu og fleiri væru á leiðinni annars staðar frá. Starfandi forseti, Rodríguez, sagði að hún hefði rætt við Donald Trump forseta Bandaríkjanna og Marco Rubio utanríkisráðherra á föstudag og þeir hefðu ítrekað skuldbindingu sína um að senda björgunarsveitir og hjálpargögn.
Venesúela Íhlutun Bandaríkjanna í Venesúela Eldgos og jarðhræringar Náttúruhamfarir Tengdar fréttir Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Halldór Geirsson jarðeðlisfræðingur hjá Háskóla Íslands þekkir vel til skjálftasvæðana í Venesúela þar sem jörð skalf í gærkvöldi, en hann aðstoðaði kollega sinn við ritun greinar um misgengin í norðurhluta Venesúela árið 2021. 25. júní 2026 12:30 Engar hjálparbeiðnir borist borgaraþjónustunni Enn hafa engar beiðnir um aðstoð borist borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins frá Íslendingum á skjálftasvæðunum í Venesúela. 25. júní 2026 10:35 Tveir risaskjálftar í Venesúela: Óttast að manntjónið sé gríðarlegt Óttast er að mörg þúsund manns hafi týnt lífi í tveimur öflugum jarðskjálftum sem skóku Venesúela í gærkvöldi. Fyrri skjálftinn mældist 7,2 og sá seinni 7,5 en upptök skjálftans voru vestur af höfuðborginni Caracas. 25. júní 2026 06:18 Mest lesið Gotta-rennibraut lokað vegna slysahættu Innlent Foreldrar standi eftir „einir, örmagna og án stuðnings“ Innlent „Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ Innlent Flest ljósin tengd stýritölvu en kerfið ekki fullnýtt Innlent Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot Innlent Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Erlent Tilkynnt um einstakling að stunda sjálfsfróun í runna Innlent Hrafnagilshverfi stækkar ört Innlent Núverandi hitabylgja „sú alvarlegasta sem mælst hefur“ Erlent Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Erlent Fleiri fréttir Núverandi hitabylgja „sú alvarlegasta sem mælst hefur“ Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Fyrrverandi ráðgjafi Trumps játar illa meðferð á trúnaðargögnum Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Finnst sturlað að Watergate hafi fellt Nixon Taugaeiturshúsið auglýst til sölu Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Konungur á meðal skattakónga Bretlands Áfengisbann í París um helgina Ein umfangsmesta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leitað í rústum bygginga og þúsunda er saknað Óttast rússneskar ögranir gegn Eystrasaltsríkjunum Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Elon Musk skipað að bera vitni undir eið „Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“ Treystir sér ekki til að ganga í gegnum fjórðu réttarhöldin Áttatíu ára gamalt hitamet slegið í Sviss Óttast óeirðir við samkomu þýsks fjarhægriflokks Hamfarir í Venesúela og andstaða við hvalveiðar Engar hjálparbeiðnir borist borgaraþjónustunni Ók inn í hús og varð konu á sjötugsaldri að bana Tveir risaskjálftar í Venesúela: Óttast að manntjónið sé gríðarlegt Hús hrundu þegar skjálfti upp á 7,1 reið yfir Fyrsta ebólutilfellið í Evrópu staðfest „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Áfram viðvaranir vegna hitasvækju víða um Evrópu Nýir bandamenn Miðflokksins sakaðir um rasisma gegn þingkonu Fundu vefnaðarmiðstöð frá víkingaöld við Árósa Slegið á fingur Trumps vegna stríðsreksturs í Íran Sjá meira
Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Halldór Geirsson jarðeðlisfræðingur hjá Háskóla Íslands þekkir vel til skjálftasvæðana í Venesúela þar sem jörð skalf í gærkvöldi, en hann aðstoðaði kollega sinn við ritun greinar um misgengin í norðurhluta Venesúela árið 2021. 25. júní 2026 12:30
Engar hjálparbeiðnir borist borgaraþjónustunni Enn hafa engar beiðnir um aðstoð borist borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins frá Íslendingum á skjálftasvæðunum í Venesúela. 25. júní 2026 10:35
Tveir risaskjálftar í Venesúela: Óttast að manntjónið sé gríðarlegt Óttast er að mörg þúsund manns hafi týnt lífi í tveimur öflugum jarðskjálftum sem skóku Venesúela í gærkvöldi. Fyrri skjálftinn mældist 7,2 og sá seinni 7,5 en upptök skjálftans voru vestur af höfuðborginni Caracas. 25. júní 2026 06:18