Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 25. júní 2026 14:30 Stephanie White, þjálfari Indiana Fever, þykir Caitlin Clark fá illa meðferð frá dómurum WNBA-deildarinnar. getty/Andy Lyons Þjálfari Indiana Fever segir að meðferðin sem ofurstjarnan Caitlin Clark fái hjá dómurum WNBA-deildarinnar í körfubolta sé óásættanleg og þeir sýni henni vanvirðingu.
Clark fór meidd af velli í 3. leikhluta þegar Fever laut í lægra haldi fyrir Phoenix Mercury í gær, 111-109. Varnarmenn Mercury tóku fast á Clark í leiknum. Alyssa Thomas kýldi hana meðal annars í hálsinn en slapp við refsingu. Based on all the animosity from Monday’s game, WNBA officials should have been on high alert for things like this tonight. Can’t let Alyssa Thomas do this to anybody (in this instance Caitlin Clark) and go unpunished pic.twitter.com/p5xGq8A5Zg— Harrison Sanford (@HarrisonSanford) June 25, 2026 Skömmu síðar var brotið á Clark í þriggja stiga skoti. Hún lenti illa og haltraði þegar hún stóð á fætur. Dómarar leiksins skoðuðu atvikið, ekki vegna brotsins á Clark heldur til að skoða hvort hún hefði slegið til varnarmannsins. Stephanie White, þjálfari Fever, fór hörðum orðum um dómgæsluna í viðtali eftir leikinn og segir Clark ekki fá sanngjarna meðferð. Clark fór af velli vegna bakmeiðsla í 3. leikhluta og kom ekkert meira við sögu í leiknum. „Við erum með einstakan leikmann, WNBA-ofurstjörnu, sem fékk tvö högg sem ekki var refsað fyrir. Það er algjörlega óásættanlegt,“ sagði White. „Við vörðum öllum tímanum á undirbúningstímabilinu í að skoða dómgæsluna. Allt sem við biðjum um er samræmi. Hún fær ekki sömu meðferð og aðrir. Höggið í hálsinn er galið. Það er hættulegt. Það er pirrandi þegar þetta gerist aftur og aftur en mér fannst þetta vera svívirðilegt.“ Clark sló í gegn með Iowa-háskólanum en hún er stigahæst í sögu háskólakörfuboltans, bæði hjá konum og körlum. Fever valdi Clark með fyrsta valrétti í nýliðavali WNBA fyrir tveimur árum. Hún var valin nýliði ársins á fyrsta tímabili sínu í WNBA og var þá einnig stoðsendingahæsti leikmaður deildarinnar. Hin 24 ára Clark er sannkölluð ofurstjarna og þykir hafa átt stóran þátt í því að auka vinsældir kvennakörfuboltans. Fever er í 7. sæti WNBA með tíu sigra og átta töp. Clark er með 21,2 stig, 4,0 fráköst og 8,6 stoðsendingar að meðaltali í leik á tímabilinu.
WNBA Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 72-92| Stjarnan heldur áfram að heilla Haukar völtuðu yfir KR og Ármann hrekkti meistarana Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Hætti við Lakers sökum hroka Kobe „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Bræður bættu stigamet pabba þeirra Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Uppgjörið: Álftanes-Keflavík 130-110 | Sóknarbolti á föstudagskvöldi Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Uppgjörið: Sindri-Tindastóll 71-78 | Frábær vörn Stólanna í lokin Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Einn nýliði í landsliðshópnum Baulað á LeBron og félaga en snéru taflinu við Starfsfólki og þjálfurum Knicks finnst það vera svikið Trump sakar LeBron um að sýna Bandaríkjunum vanvirðingu „Kærkominn“ og „lífsnauðsynlegur“ sigur „Ég hef áhyggjur en ég er ekki áhyggjufullur“ Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Sjá meira