Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Aron Guðmundsson skrifar 24. júní 2026 09:55 Dee Bost í leik með ASVEL á sínum tíma. Vísir/Getty Reynsluboltinn og leikstjórnandinn Dee Bost er genginn í raðir Tindastóls fyrir komandi átök í Bónus deild karla í körfubolta. Bost hefur leikið í sterkustu keppnum Evrópu á sínum ferli með liðum á borð við Zalgiris og Galatasaray.
Bost er 36 ára Bandaríkjamaður með evrópskt ríkisfang og var síðasta á mála hjá Al-Arabi í Katar. Á sínum ferli hefur hann leikið með liðum á borð við Monaco, Zalgiris Kaunas, Galatasaray og ASVEL. Titlarnir eru einhverjir á hans ferli. Dee Bost varð Euro Cup meistari með Monaco árið 2021. Hann hefur orðið pólskur meistari og var valinn verðmætasti leikmaður úrslitanna sem leikmaður Zielona Góra. Þá eru titlarnir fleiri frá tíma hans í Svartfjallalandi og Frakklandi. „Það er mikill heiður fyrir Tindastól að fá leikmann með reynslu, gæði og feril Dee Bost til liðs við okkur. Koma hans sýnir metnað deildarinnar og við erum sannfærð um að hann muni verða mikilvægur hluti af liðinu og stemningunni í Síkinu,“ segir Dagur Þór Baldvinsson formaður körfuknattleiksdeildar Tindastóls. „Dee er leikmaður sem kemur með mikla reynslu, sigurhugarfar og hæfileika til að gera samherja sína betri. Hann hefur spilað í stórum leikjum á háu stigi og við teljum að hans leiðtogahlutverk, yfirvegun og gæði sem leikstjórnandi muni hjálpa liðinu mikið,“ segir Arnar Guðjónsson þjálfari Tindastóls. Sjálfur er Dee Bost spenntur fyrir því að spila með Tindastól. „Ég hef heyrt frábæra hluti um stuðningsmennina, stemninguna í Síkinu og metnaðinn hjá félaginu. Ég hlakka til að hitta alla, leggja mitt af mörkum og berjast fyrir Tindastól,“ segir Dee Bost.
Bónus-deild karla Tindastóll Mest lesið United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Íslenski boltinn „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ Íslenski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn Sinner missir af Opna bandaríska Sport Strákarnir réðu ekki við Finnana Körfubolti Glódís skoraði í stórsigri Bayern Fótbolti Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Íslenski boltinn Fleiri fréttir Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Sjá meira