Hugleiðing í tilefni að þjóðhátíðardegi Íslands: Grundvöllur sjálfstæðisins var barátta þeirra fátæku fyrir betra samfélagi Ágúst Valves Jóhannesson skrifar 17. júní 2026 13:46 Til hamingju með daginn kæru samlandar með þjóðhátíðardag Íslands. Þessi dagur varð ekki til að sjálfu sér, heldur vegna erfiðisvinnu þúsunda við að búa hér til samfélag sem gat kallað sig sjálfstætt og fullvalda ríki. Erfiðisvinna þessara þúsunda sem áttu uppruna sinn í örbyggð, fátæku bændasamfélagi sem gat vart sagt sig eiga í sig og á væri með inngöngu í Evrópusambandið gert að engu. Sú mikli uppgangur sem hófst með nýsköpun Einars Olgeirssonar og félaga með kaupum á síðutogurum sem bjó til fyrstu iðnaðarstarfsemi hér á landi yrði að engu með inngöngu í Evrópusambandið. Þegar talað er um lága vexti, sem eru alls ekki sjálfgefnir, lágri verðbólgu, sem heldur er ekki sjálfgefið þá bliknar slíkt í samanburði við það efnahagslega sjálfstæði sem upphófst með nýsköpuninni sem kostaði blóð, svita og tár forfeðra okkar og mæðra. Magnús Sigmundsson orti kvæðið Freyja sem hann söng svo með Karlakórnum Fjallabræðrum en í laginu segir: ,,Ég seldi þig. Fiskinn í sjónum og fjöreggin mín, grundirnar, fjöllin og vötnin þin. Fyrir hvað?“ Þjóð getur ekki kallað sig sjálfstæða sem ekki er sér sjálfbær efnahagslega. Fjöllin, vötnin, fiskurinn og slétturnar koma alltaf til með að vera sú grunnauðlind sem allar þjóðir þurfa að hafa til að byggja sig upp efnahagslega og um leið sitt sjálfstæði. Fyrrnefndur Einar Olgeirsson áttaði sig á því, enda fáir hérlendis sem var ákafari sjálfstæðismaður á sína vísu. Ekki sá Sjálfstæðismaður sem reiðubúinn er að selja undan landinu grunnauðlindirnar, heldur sá hann þörfina á því að þjóðin þyrfti á því að halda að hafa fullt forræði á sínum fjöreggjum til þess að öðlast sjálfstæði. Vísa Magnúsar snýst um þá heimssýn sem verður raunveruleg þegar þjóðin hefur verið svipt að fullu því sem hún vann svo ötullega að. Það er vinsælt hjá aðildarsinnum að brigsla þeim sem ekki eru á því að gangast erinda Evrópusambandsins í einu og öllu og gefa eftir vald sitt á efnahagsmálum, að vera undir hælnum á auðvaldi landsins eða aðhyllast gamaldags þjóðernisrembing. Um það snúastþessi mál ekki, á engan hátt. Aldrei. Sjálfstæðið byggist á því að hafa fullt forræði á sjálfum sér, grunnauðlindunum og sínum viðskipta- og efnahagslegu hagsmunum. Það er öllum ljóst að á Íslandi er margt í ólestri. Þjóðin þarf að fá á ný forræði á sínum fjöreggjum og krefjast réttlætis í forríku landi. Innganga í Evrópusambandið kemur ekki til með að breyta nokkru í þá átt. Heldur þvert á móti, það óréttlæti sem við þekkjum í nútímasamfélagi okkar verður boltað niður til fjarlægðrar framtíðar með inngöngu í Evrópusambandið. Sjálfstæð þjóð er upplýst þjóð og upplýst þjóð veit hvað hún á að gera 29. ágúst næstkomandi. Höfundur er stjórnmálafræðingur og starfar sem sjómaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein 17. júní Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar