Ekki sést til lands í deilunni sem hefur haft áhrif á yfir sjö þúsund farþega Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 15. júní 2026 18:00 Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari segir fundinn í dag engan árangur hafa borið. Vísir/Vilhelm Ríflega sjö þúsund farþegar hafa orðið fyrir áhrifum þess að flugferðum Icelandair hefur verið aflýst vegna mönnunarvanda síðustu vikur. Mikil óvissa veldur ferðalöngum áhyggjum en kjaradeila flugmanna og Icelandair er í algjörum hnút og engin lausn í sjónmáli.
Kjaradeilunni var vísað til ríkissáttasemjara í apríl en þá höfðu kjarasamningar verið lausir frá því í lok október. Síðan þá hafa samninganefndir flugmanna og Icelandair tekist á um vinnufyrirkomulag, frídaga og svigrúm Icelandair til að skipuleggja rekstur sinn. Samkvæmt upplýsingum frá Icelandair hafa ríflega sjö þúsund farþegar orðið fyrir áhrifum þess að flugferðum Icelandair hefur verið aflýst vegna mönnunarvanda síðustu vikur. Frá byrjun maí hefur tuttugu og átta flugferðum Icelandair frá Íslandi verið aflýst en síðast í gær var þremur ferðum aflýst til Parísar, Óslóar og Toronto. Komi ekki til vegna aðgerða flugmanna Flugmenn hafa sagt að aflýsingarnar komi ekki til vegna aðgerða sem tengjast kjaradeilunni og sagði formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna síðast í maí þær sýna að flugáætlun félagsins standist ekki álagspróf með tilliti til mönnunar. Það sé á ábyrgð Icelandair að tryggja að áætlunin sé mönnuð með sjálfbærum hætti. Sumar þessara aflýsinga hafa komið til með skömmum fyrirvara og dæmi um að farþegar hafi verið mættir á flugvöll þegar aflýst var. Nokkuð hefur verið um að farþegar hafi haft samband við Neytendasamtökin til að kynna sér rétt sinn. „Farþegar eiga rétt á að velja á milli þess að velja endurgreiðslu eða vera endurbókaðir á annað flug sér að kostnaðarlausu. Ef farþegar velja að halda ferð sinni áfram þá geta þeir líka átt rétt á ákveðinni aðstoð, til dæmis gistingu ef þörf er á og máltíð og hressingu í samræmi við lengd tafar og svoleiðis,“ segir Una Magnea Stefánsdóttir lögfræðingur hjá Neytendasamtökunum. Þrátt fyrir að farþegar geti átt rétt á bótum vegna tjóns duga þær ekki alltaf þegar fólk hefur þegar greitt fyrir gistingu og bílaleigubíla á áfangastað. Fundurinn í dag hafi engan árangur borið Fyrir um þremur vikum setti Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari fjölmiðlabann á deiluaðila sem enn er í gildi. Frá þeim tíma hefur þó lítið þokast í samkomulagsátt. Samninganefndir flugmanna og Icelandair funduðu síðast í Karphúsinu í dag. Ástráður segir fundinn engan árangur hafa borið. Staðan sé mjög flókin og ekki sjáist til lands. Fundað verður aftur í Karphúsinu klukkan tíu í fyrramálið en væntingar til þess að fundurinn skili árangri eru hóflegar. Þannig segir Ástráður að verið sé að reyna að halda viðkvæmu samtali lifandi. Deiluaðilar hafi hins vegar mjög ólíkar hugmyndir og sameiginleg lausn ekki í sjónmáli. Ferðalangar hafa margir hverjir áhyggjur af stöðunni. „Þegar maður er búinn að plana með margra mánaða fyrirvara sumarfrí með fjölskyldunni þá auðvitað veldur þetta áhyggjum,“ segir Una hjá Neytendasamtökunum.
Icelandair Kjaramál Flug Mest lesið Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Viðskipti innlent Bílastæðafyrirtækin sektuð um hundruð þúsunda Neytendur Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Viðskipti innlent Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Viðskipti innlent Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Viðskipti innlent eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Viðskipti erlent Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Viðskipti innlent Opnun Costco á Íslandi frestast Viðskipti innlent Setti Ölgerðina í bann en hefur nú snúist hugur Neytendur Situr einn Íslendinga eftir á lista Forbes Viðskipti innlent Fleiri fréttir Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sjá meira