Skipagöngin samþykkt eftir pólitísk hrossakaup Kristján Már Unnarsson skrifar 14. júní 2026 08:32 Norsku skipagöngin verða fyrstu jarðgöng heims fyrir stór skip. Kystverket Skipagöngin við Stað í Noregi verða að veruleika eftir áratuga undirbúning og pólitískar deilur. Þetta varð ljóst eftir að minnihlutastjórn Verkamannaflokksins var niðurlægð með hrossakaupum í norska Stórþinginu við afgreiðslu fjáraukalaga í nýliðinni viku.
Fjármálaráðherrann Jens Stoltenberg hafði síðast í lok maímánaðar sagt skipagöngin vera skýrt dæmi um ábyrgðarlausa meðferð opinberra fjármuna eftir að ríkisstjórn Jónasar Gahr Støre hafði lýst því yfir að jarðgangaverkefnið yrði endanlega slegið af. Minnihlutastjórnin hafði í frumvarpi til fjáraukalaga lagt til að engin framlög yrðu til skipaganga en var auðmýkt þegar niðurstaðan varð sú að samþykkt var 150 milljóna norskra króna fjárveiting, andvirði um tveggja milljarða íslenskra, til að hefja framkvæmdir. Heimamenn sjá fyrir sér að skipagöngin verði mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn.Kystverket Norska ríkisútvarpið NRK lýsir atburðarásinni í Stórþinginu sem ævintýralegri á lokaspretti þingstarfanna. Hrossakaupmönnum Miðflokksins, systurflokki Framsóknarflokksins íslenska, hafi með fjörutíu stunda yfirvinnu, þegar komið var fram yfir öll tímamörk, tekist að knésetja forystumenn Verkamannaflokksins og þvinga þá til að fallast á skipagöngin frekar en að verða undir í atkvæðagreiðslu. Við blasti að meirihluti myndi styðja göngin þegar bæði Hægri og Framfaraflokkurinn lögðust á sveif með þeim. Skipagöngin verða 1,7 kílómetrar að lengd, 36 metrar á breidd og 50 metrar á hæð en þar af verður þriðjungurinn undir sjávarmáli.KYSTVERKET/SNØHETTA, PLOMP Verkamannaflokkurinn náði svo samkomulagi við fjóra aðra vinstri- og miðjuflokka um lokaafgreiðslu fjáraukalaga og var Íslendingurinn Mímir Kristjánsson, þingmaður Rauðra, í hópi fulltrúa flokkanna sem kynntu niðurstöðuna. Peningarnir verða sóttir í norska olíusjóðinn. Þetta þýðir að Kystverket, siglingastofnun Noregs, er núna heimilað að undirrita verksamning um skipagöngin upp á 8,6 milljarða norskra króna, andvirði um 113 milljarða íslenskra. Göngin verða 1,7 kílómetra löng í gegnum nesið Stað. Þeim er ætlað að hlífa sjófarendum við að sigla um veðravíti og svæsna röst utan við Stað milli Bergen og Álasunds á vesturströnd Noregs. Myndband af skipagöngunum var sýnt í fréttum Stöðvar 2 fyrir sex árum þegar þau virtust vera í höfn:
Noregur Skipaflutningar Samgöngumál Sjávarútvegur Tengdar fréttir Sakaðir um blekkingar vegna skipaganganna Norski forsætisráðherrann Jonas Gahr Støre og aðrir ráðherrar minnihlutastjórnar Verkamannaflokksins eru sakaðir um blekkingar í umræðum um skipagöngin við Stað í aðdraganda þingkosninganna í Noregi þann 8. september síðastliðinn. Ásakanirnar koma meðal annars frá formanni nánasta samstarfsflokks Verkamannaflokksins á síðasta kjörtímabili. 25. október 2025 08:29 Stórþingið niðurlægir Støre og opnar aftur á skipagöng Norska Stórþingið sló á puttana á forsætisráðherranum Jonas Gahr Støre í fyrradag vegna ákvörðunar hans í síðustu viku um að hætta við gerð skipaganganna við Stað. Í stað þess að göngin umdeildu yrðu endanlega slegin út af borðinu, eins og ríkisstjórnin vildi, náðist meirihluti í þinginu fyrir tillögu sem heldur voninni um göngin á lífi. 16. október 2025 11:01 Norska ríkisstjórnin slær skipagöngin út af borðinu Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, tilkynnti í dag að hætt hefði verið við skipagöngin við Stað. Engin framlög yrðu í fjárlagafrumvarpi næsta árs til skipaganganna. 10. október 2025 14:21 Svona sigla skipstjórar inn í fyrstu skipagöng heims Norskir skipstjórar eru þegar byrjaðir að æfa siglingar í gegnum fyrstu skipagöng heims, þótt ekki verði byrjað að grafa göngin fyrr en eftir tvö ár. 8. júní 2016 19:30 Mest lesið Fella niður 26 flugferðir Innlent Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Segir stóra ákvörðun framundan Erlent Lögreglan leitar að Arturas Innlent Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Innlent Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Erlent „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Innlent Líkamsárás í Breiðholti Innlent Hvannadalshnjúkur lækkar Innlent Fleiri fréttir Fella niður 26 flugferðir Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Lögreglan leitar að Arturas Flugfreyjur og flugmenn styðja flugvirkja Þetta er í samkomulaginu um Grænland Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Bein útsending: Kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Nýtt áhættumat: Bjóða Grindvíkingum að kaupa húsin til baka Flestir félagar vilji frekari kjarabætur vegna forsendubrests Kristján hótar lögsókn verði bann að lögum Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Hefja athugun á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Stefnir í aflýsingar á öllu morgunflugi frá Keflavík og Reykjavík Munu ekki samþykkja frekari hækkun launa Árleg framlög jukust um 286 milljónir en Sinfónían aftur rekin með tapi Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Neitar að tjá sig um hvort lög verði sett á verkfall Ekkert í afkomu fyrirtækja sem sýni virðingu fyrir kjarasamningum Þokast æ fjær loftslagsskuldbindingum Íslands Leita lausnar áður en verkfall hefst á miðnætti Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Boða stórsókn í skóla- og menntamálum í Reykjavík Sjá meira
Sakaðir um blekkingar vegna skipaganganna Norski forsætisráðherrann Jonas Gahr Støre og aðrir ráðherrar minnihlutastjórnar Verkamannaflokksins eru sakaðir um blekkingar í umræðum um skipagöngin við Stað í aðdraganda þingkosninganna í Noregi þann 8. september síðastliðinn. Ásakanirnar koma meðal annars frá formanni nánasta samstarfsflokks Verkamannaflokksins á síðasta kjörtímabili. 25. október 2025 08:29
Stórþingið niðurlægir Støre og opnar aftur á skipagöng Norska Stórþingið sló á puttana á forsætisráðherranum Jonas Gahr Støre í fyrradag vegna ákvörðunar hans í síðustu viku um að hætta við gerð skipaganganna við Stað. Í stað þess að göngin umdeildu yrðu endanlega slegin út af borðinu, eins og ríkisstjórnin vildi, náðist meirihluti í þinginu fyrir tillögu sem heldur voninni um göngin á lífi. 16. október 2025 11:01
Norska ríkisstjórnin slær skipagöngin út af borðinu Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, tilkynnti í dag að hætt hefði verið við skipagöngin við Stað. Engin framlög yrðu í fjárlagafrumvarpi næsta árs til skipaganganna. 10. október 2025 14:21
Svona sigla skipstjórar inn í fyrstu skipagöng heims Norskir skipstjórar eru þegar byrjaðir að æfa siglingar í gegnum fyrstu skipagöng heims, þótt ekki verði byrjað að grafa göngin fyrr en eftir tvö ár. 8. júní 2016 19:30