Innlent

Skjálfti í Bárðar­bungu að stærð 4,8

Eiður Þór Árnason skrifar
Bárðarbunga sést hér í fjarska.
Bárðarbunga sést hér í fjarska. Vísir/vilhelm

Tveir jarðskjálftar mældust í Bárðarbungu upp úr klukkan átta í kvöld að stærð 2,6 og 4,8. Skjálftar af þessari stærð sjást nokkuð reglulega í Bárðarbungu, að sögn Veðurstofunnar. Fyrri skjálftinn mældist klukkan 20:10 og sá seinni klukkan 20:14.

Klukkan 22:30 mældist svo annar skjálfti að stærðinni 3,7 en allir þrír voru staðsettir í norðanverðri öskju Bárðarbungu. Sá síðasti er einn af um sextíu skjálftum sem mælst hafa í norðanverðri öskju Bárðarbungu síðan stærsti skjálftinn varð klukkan 20:14. Greint er frá þessu í tilkynningum frá náttúruvárvakt Veðurstofu Íslands.

Síðast fannst skjálfti yfir fimm að stærð á svæðinu þann 31. janúar síðastliðinn og mældist hann 5,4.

Bárðarbunga er megineldstöð sem liggur undir Vatnajökli og hafa minnst 26 eldgos orðið þar á síðustu ellefu öldum, samkvæmt hinni íslensku eldfjallavefsjá. Síðast var þar sprungugos í Holuhrauni norðan Vatnajökuls sem stóð yfir frá ágúst 2014 til febrúar 2015.

Fréttin hefur verið uppfærð með upplýsingum um þriðja skjálftann í kvöld. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×