Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson skrifar 12. júní 2026 22:29 Nú fyrir skemmstu féllu tveir dómar í héraði, sem vörðuðu bætur fyrir flugferðir skv. EB reglugerð 261/2004, um staðlaðar bætur vegna flugferða. Í þessum tilteknu málum var reyndar um að ræða flug sem var ekki frá Íslandi né til, heldur alfarið erlendis. Flugfélagið var heldur ekki íslenskt, né með útibú á Íslandi. Taldi því dómari að tilvikið félli ekki innan marka Einkamálalaga nr. 91/1991. Til að fara örlítið yfir sögu þessara mála, sem eru keimlík innan Evrópu, má nefna að lengst af hefur hérlendis og erlendis verið beitt ákvæði Montréal sáttmálans um tjón af völdum flugfélaga, að varnarþing geti verið þar sem að samningur komst á. Þar sem flugfélög bjóða þjónustu sína til allra, þó þeim sé í lófa lagt að loka á ákveðið þjóðerni, hefur verið miðað við varnarþing kaupanda sem að kaupir flugmiðann. Það hefur leyft evrópskum neytendum að sækja réttindi sín án mikils ómaks. Hæstiréttur Ítalíu komst m.a. að því, að það sé í raun ívilnandi einnig fyrir flugfélögin, að miða við varnarþing kaupanda, til að útrýma óvissu og möguleika kaupanda á að velja óhagstæðari varnarþing fyrir flugfélögin. Nýlega snéri hæstiréttur þessu dómafordæmi við, og ákvað að Montréal samningurinn og EB reglugerðin séu þess eðlis, að þar sem að EB reglugerðin fjalli um afmarkaðra svið, þá ryðji hún ákvæðum Montréal sáttmálans á grundvelli Lex Specialis reglunnar og því ekki hægt að beita varnarþingsákvæðum Montréal sáttmálans til að krefjast bóta á grundvelli EB reglugerðarinnar. Við lestur á fyrrnefndum íslenskum dómum sá ég að tekið var fram að Montréal sáttmálinn hefði ekki áhrif á EB reglugerðina, svo að íslenskir dómstólar hafa farið þarna að erlendu fordæmi. Að þessari söguskýringu liðinni, vil ég vinda mér í ástæðu skrifa þessara. Eins og flestir vita, eru neytendur orðnir mun alþjóðlegri í kaupum sínum en áður með tilkomu internetsins. Neytendur sem áður fóru í verslanir geta nú hæglega keypt vörur eða þjónustu erlendis frá. Sem dæmi má nefna tölvuleiki í borðtölvur eru nú ófáanlegir í Elko, enda kaupa nær allir borðtölvueigendur tölvuleikina sína í gegnum Steam eða álíka þjónustu. Íslendingar fara til Ungverjalands í tannviðgerðir, Tyrklands í hárígræðslu og Tene í sólbað. Í Evrópu hafa menn verið að reyna að finna leiðir til að verja neytendur fyrst og fremst gegn stórfyrirtækjum. Því hafa neytendur almennt rétt til að stefna fyrirtækjum sem þeir skipta við í eigin varnarþingi, en reglan er síður en svo skýr. Nýlega féll dómur í Austurríki þar sem að einstaklingur lögsótti maltneskt veðmálafyrirtæki, og fékk það í gegn á þeim grundvelli að tjónið hafi orðið í Austurríki. Núna hafa kínversk fyrirtæki hafið innreið sína, og Evrópusambandið brást snarlega við með tilskipun um að ríki skulu setja lög og reglur sem að leyfa neytendum að höfða mál fyrir eigin dómstólum. Ísland er eins og við má búast eftirbátur þegar kemur að þessu, en ég er með uppástungu hvernig hægt er að tryggja hag neytenda, verja fyrirtæki fyrir ósanngjörnum kröfum og uppfylla skyldur okkar gagnvart tilskipunum 2019/770, 2019/771 og 93/13/EEC, enda ná þessar tilskipanir einnig til EES ríkja. Ég mæli með bæta grein, sem yrði grein 37. a, ellegar bæta annarri málsgrein í 37. gr., sem væri eftirfarandi: Mál vegna kaupa á vöru og þjónustu erlendis má sækja í þeirri þinghá sem samningur komst á. Það ætti að ná yfir langflest tilvik þar sem neytendur lenda í vandræðum með varnarþing seljenda. Vissulega gæti verið dæmi um að fyrirtæki kæri sig ekki um íslensk viðskipti en samþykki einhver kaup fyrir slysni eða í misgáningi en áttar sig svo á að ekki sé hægt að framkvæma samninginn. Í slíkum tilvikum ætti fyrirtækið undantekningarlaust að endurgreiða, og hafi fyrirtækið orðið fyrir tjóni vegna þessa fellur atvikið undir lög um neytendakaup sem að áskilur að seljandi megi krefjast bóta vegna tjóns sem hann verður fyrir vegna afpöntunar, sem réttilega mætti draga af endurgreiðslu. Telji neytandi sig hlunnfarinn engu að síður getur hann reynt dómstólaleiðina hérlendis, en ef að erlent félag er vissulega ekki með neina starfsemi eða eignir á Íslandi, myndi aðfararhæf krafa í raun engu skipta. Stærri fyrirtæki sem vissulega eru með starfsemi hér, þó ekki útibú, gætu hins vegar þurft að sæta aðför og því þurft að greiða sínar skuldir. Ég tel nauðsynlegt að koma þessum málum í eðlilegt horf, í ljósi þess að kaup af vörum og þjónustu erlendis frá muni líklegast bara aukast á næstu árum, og í raun rýrir óbreytt ástand samkeppnishæfni innlendra aðila. Að auki myndi öll óvissa um lögsögu íslenskra dómstóla gagnvart stærri tæknirisum eins og Google, Meta og X vera eytt. Höfundur er lögfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Skoðun Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar