Körfubolti

Elvar og fé­lagar fara 2-0 undir heim til Kanarí­eyja

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Elvar Már Friðriksson og félagar eru með bakið upp við vegg.
Elvar Már Friðriksson og félagar eru með bakið upp við vegg. Vísir/Hulda Margrét

Elvar Már Friðriksson og félagar í La Laguna Tenerife eru lentir 2-0 undir í undanúrslitaeinvígi sínu á móti Barcelona.

Liðið tapaði öðrum leiknum með átta stiga mun, 97-89, en frammistaðan var allt önnur en í fyrsta leiknum sem tapaðist með 33 stigum, 100-67. Tap var engu að síður niðurstaðan og liðið er því komið upp að vegg.

Elvar fékk ekkert að spila í kvöld en langatkvæðamesti leikmaður liðsins var Ástralinn Patty Mills með 36 stig og átta þrista. Tékkinn Jan Vesely skoraði mest fyrir Barcelona eða 19 stig.

Fyrstu tveir leikirnir fóru fram í Barcelona en nú færa liðin sig yfir til Kanaríeyja.

Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki kemst í úrslitaeinvígið en La Laguna Tenerife þarf að vinna næsta leik til að fá annan heimaleik.

Það lið sem vinnur þetta einvígi mætir annaðhvort Valencia Basket eða Asisa Joventut í lokaúrslitunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×