Stólarnir ráða Ísak Wíum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. júní 2026 17:20 Ísak Máni Wíum og Dagur Þór Baldvinsson, formaður Körfuknattleiksdeildar Tindastóls, handsala samninginn. Körfuknattleiksdeild Tindastóls Ísak Máni Wíum snýr aftur í Bónus-deildina en þó ekki sem aðalþjálfari heldur aðstoðarþjálfari. Hann tekur líka að sér fleiri störf á Króknum.
Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur gengið frá ráðningu Ísaks Wíum til starfa hjá deildinni. Ísak mun gegna fjölbreyttu og mikilvægu hlutverki sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla með Karli Agústi, verkefnastjóri Körfuknattleiksdeildar Tindastóls og þjálfari tveggja elstu drengjaflokka félagsins. „Ráðningin er liður í áframhaldandi uppbyggingu körfuknattleiksstarfs Tindastóls, sem hefur aukist verulega að umfangi á undanförnum árum. Deildin byggir á öflugu framlagi sjálfboðaliða sem hafa um árabil lagt grunn að því sterka starfi sem nú fer fram innan félagsins. Samhliða auknum umsvifum er hins vegar ljóst að hluta verkefnanna þarf að festa betur í sessi með skilgreindum hlutverkum og auknu faglegu utanumhaldi, enda er ekki sjálfbært til lengri tíma að dagleg og umfangsmikil verkefni hvíli alfarið á sjálfboðavinnu,“ segir í frétt á miðlum Tindastóls. Ísak stýrði liði ÍR tímabilið 2022-23 en hætti svo störfum eftir aðeins sex leiki á 2023-24 tímabilinu. Ísak lýsir þar yfir mikilli ánægju með komandi tíma í Skagafirði og hlakkar til að takast á við nýjar áskoranir: „Ég er mjög spenntur að flytja í Skagafjörðinn og taka þátt í þessum skemmtilegu verkefnum sem fylgja því að þjálfa Tindastól. Mín stuttu kynni af starfinu hingað til hafa verið mjög góð og er mikil eftirvænting að mæta á svæðið og kynnast öllum í kringum félagið betur,“ sagði Ísak Máni sem kemur til starfa af fullum krafti frá og með miðjum ágúst. Dagur Þór Baldvinsson, formaður Körfuknattleiksdeildar Tindastóls, segir ráðninguna mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu deildarinnar: „Með ráðningu Ísaks er markmiðið að styrkja daglegt skipulag deildarinnar, efla þjálfunarumhverfi yngri flokka og styðja enn frekar við starf meistaraflokks karla. Ráðningin er jafnframt mikilvægur liður í því að skapa traustari grunn undir áframhaldandi uppbyggingu körfuboltans á Sauðárkróki og tryggja að verkefnum deildarinnar sé sinnt með faglegum og sjálfbærum hætti.“
Bónus-deild karla Tindastóll Mest lesið Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Fótbolti Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Mexíkó – Suður-Afríka | HM fer af stað í Mexíkóborg Fótbolti Fleiri fréttir Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Sjá meira