Hæstiréttur hafnar beiðni Elju um að taka fyrir meiðyrðamál Freyja Þórisdóttir skrifar 10. júní 2026 15:04 Vilhjálmur H. Vilhjálmsson gætti hagsmuna Eljumanna en Gísli Tryggvason stóð vaktina fyrir Hjálmar í dómssal. Vísir Hæstiréttur hefur hafnað áfrýjunarleyfisbeiðni Elju starfsmannaþjónustu vegna dóms Landsréttar í máli sem til kom vegna ummæla Hjálmars Friðrikssonar blaðamanns í frétt á Samstöðinni. Ummælin voru í tengslum við andlát sextugs Pólverja í bruna á Funahöfða í október 2023 en í máli Elju er fjallað um að Hjálmar hafi gengið hvað lengst þegar hann skrifaði að nútíma þrælahald, sem Elja stundi, hafi „nú dregið mann til dauða á Íslandi.“
Dómur Landsréttar féll í mars fyrr á þessu ári. Þar var Hjálmar sýknaður af stefnu Elju starfsmannaþjónustu, sem er félag fjárfestanna Arnars Haukssonar, Jóns Einars Eyjólfssonar og Péturs Árna. Í kjölfar dóms Landréttar leitaði Elja til Hæstiréttur sem hefur nú hafnað beiðni Elju um að málið verði tekið upp að nýju. Í ákvörðun Hæstaréttar segir að „hvorki verði séð að málsmeðferð fyrir Landsrétti hafi verið stórlega ábótavant né að dómur Landsréttar sé bersýnilega rangur að formi eða efni“. Fréttirnar á vef Samstöðvarinnar þar sem ummælin voru látin falla birtust með fyrirsögnunum „Arnar, Pétur Árni og Jón Einar eru nútíma þrælahaldarar“ og „Lést í húsi Péturs, Jóns Einars og Arnars“. Ummælin sem félagið krafðist þess að yrðu dæmd dauð og ómerk voru: Sannleikurinn er þó að Elja stundar nútíma þrælahald, sem hefur nú dregið mann til dauða á Íslandi Nú hafa þessir vafasömu starfshættir dregið mann til dauða. Það ætti ekki að koma neinum á óvart að það má hafa góðar tekjur af þrælahaldi. Svo er raunin með Elju. Í máli Elju féllst Landsréttur á það með héraðsdómi að við heildstætt mat á ummælum Hjálmars yrði að leggja til grundvallar að þau hefðu verið liður í almennri þjóðfélagsumræðu um aðstæður og aðbúnað erlends verkafólks hér á landi, einkum búsetuaðstæður þess, að umræða um þessi atriði ætti erindi við almenning og að mikilvægt væri að hún færi fram. Óumdeilt væri að eigendur hefðu á undanförnum árum, í gegnum félög sín á borð við Elju, rekið starfsmannaleigu og leigt út húsnæði til erlends verkafólks, auk þess sem fyrir lægi að mikil umsvif hefðu fylgt starfsemi þeirra. Alltaf einhverjir menn sem beri ábyrgð Það var þann 16. október 2023 sem eldur kom upp í iðnaðarhúsnæði í Funahöfða í Reykjavík. Þrír voru fluttir á bráðamóttöku Landspítalans en fjöldi fólks bjó í húsinu, að megninu til erlent verkafólk. Einn slasaðist alvarlega og lést af sárum sínum. Hjálmar sagði í samtali við blaðamann Vísis í mars síðastliðinn að honum þætti ótrúlegt að hafa verið dreginn fyrir dóm fyrir að hafa greint frá staðreyndum málsins vegna brunans. Málið sýni fram á hverjir beri í raun ábyrgð vegna málsins, það sé ekki fyrirtæki eða stofnanir heldur einstaklingar af holdi og blóði. Fram kom í fréttum í kringum eldsvoðann að húsnæðið væri að mestu í eigu tveggja félaga í eigu þriggja manna: Péturs Árna Jónssonar, framkvæmdastjóra Heildar fasteignafélagsins og aðaleiganda útgáfufélags Viðskiptablaðsins, Jóns Einars Eyjólfssonar, stjórnarmanns hjá Elju starfsmannaþjónustu, og Arnars Haukssonar, sem starfað hefur sem stjórnandi hjá Elju. „Það er ákveðinn galli hjá mörgum blaðamönnum að velja að nefna alltaf stofnanir og hús, sem þýðir ekki neitt. Það eru alltaf einhverjir menn sem bera ábyrgð. Þarna eru menn sem bera ábyrgð, ekki bara fyrirtæki úti í bæ, menn sem eiga Viðskiptablaðið. Þetta er allt tengt, það er hugsunin mín með því að birta nöfn og andlit, það er alltaf fólk á bak við allar ákvarðanir,“ sagði Hjálmar sömuleiðis.
Dómsmál Fjölmiðlar Tjáningarfrelsi Bruni á Funahöfða Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Sjá meira