Mæla með kaupum og telja að það horfi til betri vegar eftir mikinn ólgusjó
Eftir að hafa verið í miklum ólgusjó síðustu misseri þá horfir til betri vegar hjá Alvotech með umsóknum um markaðsleyfi á nýjum lyfjum til FDA, samkvæmt nýrri greiningu, en félagið er verðmetið langt yfir markaðsgengi og því spáð að tekjur þessa árs verði við efri mörk útistandandi afkomuáætlunar. Greinendur vara samt við því að ef það verða hnökrar í ár á rekstri Alvotech, sem skuldar samtals um 1,7 milljarða dala, með tilheyrandi neikvæðum áhrifum á áætlanir næstu ára þá séu „töluverðar líkur“ á að félagið lendi í erfiðleikum.
Tengdar fréttir
Sér mikil tækifæri með hliðstæðu við Simponi vegna takmarkaðrar samkeppni
Alvotech gerir ráð fyrir því að vera komið með þrjár nýjar líftæknilyfjahliðstæður á Bandaríkjamarkað í árslok og horfir þar einkum til tækifæra með hliðstæðuna við Simponi, að sögn stofnanda og aðaleigenda félagsins, þar sem samkeppnin er „mjög takmörkuð.“ Hann segir Alvotech vera á ákveðnum „vendipunkti“ og að breytingar á regluverki FDA séu til þess fallnar að styrkja samkeppnisstöðu félagsins enda talsverðar aðgangshindranir fyrir nýja leikendur að koma inn á markaðinn.
Hvað segja greinendur erlendra banka um stöðu og horfur Alvotech?
Eftir að hafa hríðfallið á fáeinum mánuðum þá endurspeglar núverandi hlutabréfaverð Alvotech að stórum hluta þær tafir sem hafa orðið á markaðssetningu nýrra lyfja í Bandaríkjunum og skýrari mynd þarf að fást á framhaldið áður en búast megi við snörpum viðsnúningi, að mati sérfræðinga. Greinendur erlendra fjármálastofnana hafa á síðustu dögum verið að uppfæra verðmöt sín á Alvotech, sem flestir telja að sé undirverðlagt á markaði, og sumir eru „hóflega“ bjartsýnir á að félagið sé að snúa vörn í sókn á meðan aðrir undirstrika að óvissan er enn mikil.