Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 9. júní 2026 22:30 Ingi Björn Sigurðsson missti eiginkonu sína úr krabbameini. Bylgjan Ingi Björn Sigurðsson missti eiginkonu sína úr krabbameini fyrir tæpu einu og hálfu ári síðan en hann er enn að fá kröfur frá ríkisstofnun vegna andlátsins. Hann kallar eftir betri samræmingu kerfa. „
Konan mín lést fyrir fimmtán mánuðum síðan og þá stend ég uppi sem ekkill, fjögurra barna faðir. Hún deyr á líknardeild úr krabbameini og þar fæ ég bækling, réttindi eftirlifenda, mig minnir að hann hafi heitið,“ segir Ingi Björn sem ræddi málið í Reykjavík síðdegis. „Það eru náttúrulega sjö manns að meðaltali á dag sem deyja á Íslandi, þannig að þetta er staða sem ansi margir hafa verið í en þetta var nýtt fyrir mér.“ Ingi segir það algjörlega „galið“ hversu flókið það var að finna upplýsingar um hver réttindi hans sem ekkils væru. Fyrir utan eina grein á vef Sorgarmiðstöðvarinnar þurfti hann að vaða sjálfur í gegnum kerfið. Hann hafi varið tugum klukkustunda í málið. „Sumt var rafrænt, það eina sem var sjálfvirkt í kerfinu er að þegar maður skilar inn rafrænu dánarvottorði verður maður ekkill í Þjóðskrá. Annað þarft þú að sækja, þú þarft að sækja réttindi frá tryggingastofnun, stéttarfélagi eða lífeyrissjóði. Þú þarft að banka á óteljandi dyr.“ Fjármál heimilisins hafi verið verkefni eiginkonu hans en Ingi segist ekki hafa viljað eyða dýrmætum tíma í að ræða slík mál. „Okkar viðhorf gagnvart þessu verkefni sem var að vera með krabbamein, þá höfðum við alltaf vonina. Það seinasta sem ég vildi í raun vera að tala um á dánarbeðinu hennar voru málefni eins og þetta.“ Stendur frammi fyrir annarri skuld „Þetta voru ekki bara tekjur heldur líka gjöld og í okkar tilfelli kom upp sú staða að hún hafði fengið ofgreitt frá Tryggingastofnun og það var eitthvað sem ég hafði engar forsendur eða vissi nokkuð um. Ég fékk bara kröfu frá þeim upp á að það væri skuld, allt í góðu, rétt skal vera rétt. Ég bað samt um að fá rökstuðning fyrir útreikningunum og það tók sirka sex mánuði,“ segir Ingi. Hann bætir við að stofnunin hafi einnig tekið fimm vikur að úrskurða um andlát eiginkonu hans. „Ég endaði á að borga því mér var hótað að fara í sýslumanninn.“ Nú standi hann frammi fyrir enn annarri skuldinni en fyrir nokkrum dögum fékk hann nýjar kröfur frá Skattinum og Tryggingastofnun. „Sorgin er eitt, missirinn er annað og söknuðurinn en það eru svo fjárhagsáhyggjur. Það að klára ekki dæmið og svo kemur þetta núna fimmtán mánuðum seinna á Ísland.is, heyrðu það er meiri skuld,“ segir hann. „Ég hefði viljað fá að vita það þegar ég var að standa í þessu stappi fyrir tólf mánuðum síðan, þá var alveg ljóst að það yrði meiri skuld tólf mánuðum eftir það. Þannig ég hefði viljað geta gert þetta upp eins fljótt og vel og mögulegt er.“ Miðlægt kerfi Ingi Björn kallar eftir eins konar miðlægu kerfi þar sem hægt er að gera upp allt í einu. „Tryggingarfélögin, bankarnir, lífeyrissjóðirnir og stéttarfélögin, þetta ætti að vera þannig að maður skráir sig inn og er kominn með dánarvottorð, situr í óskiptu búi og þá er þetta bara slétt og fellt,“ segir hann. „Það er alveg galið að það sé kominn einhver endurútreikningur núna fimmtán mánuðum seinna. Upplýsingarnar voru ljósar fyrir fimmtán mánuðum.“ Hann gerir ráð fyrir að töluvert fleiri standi í sömu sporum og hann.
Reykjavík síðdegis Bylgjan Fjármál heimilisins Mest lesið „Fólk er bara slegið“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Blása á gagnrýni og opna dagatalið Innlent „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Fleiri fréttir Ríkisstjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar Skora á yfirvöld að taka SÁÁ til skoðunar „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Fleiri en einn yfirheyrður en enginn í haldi Segir afnám vaxtabóta bitna á tekjulágum heimilum Blása á gagnrýni og opna dagatalið „Fólk er bara slegið“ Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Sjá meira