Bjargráður bjargaði báðum: „Í mínu tilfelli var þetta ekki þess virði“ Aron Guðmundsson skrifar 9. júní 2026 07:31 Emil Pálsson skilur það líklega manna best í hvernig stöðu Christian Eriksen er núna eftir að hafa hnigið niður í annað skipti í leik með danska landsliðinu. Emil lagði sjálfur knattspyrnuskóna á hilluna eftir að hafa í tvígang farið í hjartastopp. Vísir/Samsett Emil Pálsson, sem lagði knattspyrnuskóna á hilluna eftir að hafa í tvígang farið í hjartastopp, telur sömu spurningar nú vera uppi hjá Christian Eriksen sem hneig niður í annað skipti með danska landsliðinu á sunnudaginn. Þeir og fleiri séu heppnir að tækni á við bjargráð geti gripið inn í þegar á þarf að halda en eftir annað hjartastoppið breyttist sýn Emils á framhaldið í boltanum.
Í færslu á samfélagsmiðlum í gær sagði Eriksen bjargráðinn hafa sannað gildi sitt og gripið inn í á hárréttri stundu í leik Danmerkur og Úkraínu á sunnudaginn síðastliðinn. Í tvígang hefur bjargráðurinn bjargað Emil. „Bjargráðurinn er tengdur beint við hjartað og greinir allar hjartsláttartruflanir sem þú verður fyrir,“ segir Emil í viðtali við íþróttadeild Sýnar. „Hann er klár og grípur inn í ef hann greinir að eitthvað sé í gangi sem á ekki að vera í gangi. Hjartsláttartruflun, hraður taktur eða hvað það er. Hann hefur hjálpað mér tvisvar sinnum eftir að ég fór í fyrsta hjartastoppið. Hann hjálpaði mér þegar að ég var á æfingu hjá FH á leið aftur til Noregs til að halda áfram að spila. Þar fer ég í annað hjartastopp og bjargráðurinn kemur inn þar.“ „Svo er ég góður í þrjú ár, ekkert gerist og ég æfi nokkuð vel og mikið undir eftirliti. Svo þarf ég á bjargráðnum aftur að halda þegar að ég er að spila padel á síðasta ári. Ég er mjög þakklátur fyrir þessa græju, það eru fleiri sem eru það og Eriksen pottþétt í dag. Að tæknin sé orðin þetta góð að hún geti gripið inn í. Á sama tíma er þetta náttúrulega sjokk. Eitthvað sem maður vill klárlega koma í veg fyrir að gerist.“ Var ekki þess virði Í annað sinn sem Eriksen hnígur niður á vellinum. Fyrra skiptið var á EM árið 2021. Það var eftir annað skiptið hjá Emil sem greina mátti breytingu á sýninni varðandi framhaldið. Skórnir fóru á hilluna. „Eftir fyrsta skiptið er þetta meira þvílíkt sjokk. Einu hugsanirnar sem ná í gegn til að byrja með eru þær að maður sé þakklátur fyrir það að vera á lífi. Eftir fyrsta skiptið snýst þetta að öllu leiti um það. Að ég hafi lifað þetta af. Hjartastopp ekki með bjargráð. Það eru bara rosalega litlar líkur á að þú lifir það af.“ „Þú þarft að vera í aðstæðum þar sem að hlutirnir gerast mjög hratt. Ég var, sem betur fer, í slíkum aðstæðum. Í annað skiptið, þegar að bjargráðurinn greip inn í, man ég að tilfinningin var meira bara: „jæja nú er þetta búið,“ og á Emil þar við knattspyrnuferilinn. Hann gerir ráð fyrir því að sama tilfinningin sé núna að bærast um hjá Eriksen. „Orðin 34 ára, búinn að upplifa allt sem hann hefur upplifað á ferlinum og þetta gerist í annað skiptið. Án þess að tala fyrir hans hönd þá var það þannig í mínu tilfelli að þetta væri ekki þess virði. Maður þarf bara að setja heilsuna í fyrsta sætið og vera skynsamur.“ Hjartað óútreiknanlegt Eriksen hafði spilað án þess að nokkuð hjartatengt hafði gerst í um þrjú og hálft ár. „Þetta er eitt af því sem er erfitt með hjartað. Í mörgum tilfellum er ekkert fullkomlega vitað hvað sé að. Það á við í mínu tilfelli. Það er erfitt að segja til um hvenær þetta gæti gerst og hvenær ekki. Þá er maður svolítið að taka sénsinn. Það er aldrei útilokað í hans tilfelli, ekki að ég viti hvað er að hjá honum, en erfitt að útiloka að þetta geti aldrei gerst aftur. Það er eflaust með tilkomu bjargráðsins sem hann hefur fengið smá öryggi í að geta haldið áfram. Það var það sama í mínu tilfelli.“ Fann ástríðu sinni farveg Nær allt sitt líf fyrir hjartastoppið þekkti Emil vart annað en að spila fótbolta. Því var kippt frá honum á svipskotstundu en nú, 33 ára gamall, hefur hann fundið ástríðu sinni á boltanum farveg. Emil starfar í þjálfarateymi karlaliðs Breiðabliks. Emil var ráðinn til Breiðabliks sem afreksþjálfari efstu karlaflokka félagsins. Að auki er hann þjálfari í þjálfarateymi Ólafs Inga Skúlasonar með meistaraflokk karla.Mynd:Breiðablik „Ég hoppaði inn í þjálfun ári eftir að ég hætti í fótbolta. Tók smá tíma í að hreinsa hausinn fyrir sjálfan mig, njóta þess að vera lífi og geta gert það sem að ég vildi. Smá andleg endurhæfing fyrir mig. En auðvitað á þeim tíma var ég farinn að hugsa hvað ég ætlaði að gera næst og fann að fótboltinn togaði mig alltaf til sín. Á endanum fer ég í þjálfun, byrja í yngri flokkunum og fann að með tímanum óx þetta ásmegin hjá mér og ég fór að hafa meiri og meiri áhuga á þessu, sökkti mér meira í þjálfarafræðina. Það endar á því að ég fæ gott tilboð í fyrra. Að koma í Breiðablik og fara í meistaraflokksþjálfun. Sem ég hafði mikinn áhuga á. Ég er mjög ánægður með þann stað sem ég er á í dag.“ Hann sér vel fyrir sér að taka stökkið í framtíðinni og gerast aðalþjálfari. „Aldrei að segja aldrei en ég geri mér líka grein fyrir því að framundan er langur vegur. Ég er á mínu þriðja ári sem þjálfari. Maður heldur oft að maður viti allt en er svo kippt niður á jörðina. Maður er enn svolítið langt frá þessu. Það er bara að geggjað að vera í þessu umhverfi hjá Breiðabliki. Með mjög gott þjálfarateymi með mér sem ég læri af á hverjum einasta degi. Hrikalega góðan leikmannahóp sem reynir á mig og ég reyni á þá. Þetta er klárlega umhverfi sem maður getur bætt sig mikið í.“ Viðtalið við Emil í heild sinni má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. Frétt upp úr viðtalinu sem sýnd var í Sportpakkanum á Sýn í gær er í spilaranum ofarlega í fréttinni. Klippa: Í þrígang farið í hjartastopp
Íslenski boltinn Norski boltinn Danski boltinn Breiðablik Mest lesið Argentína - Ísland | Messi og félagar mæta strákunum okkar Fótbolti Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Fótbolti Krakkarnir fá frí í skólum vegna HM og foreldrarnir vinna heima Fótbolti Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Enski boltinn Miðar teknir af Íran dögum fyrir fyrsta leik Fótbolti „Þær eru ekkert eðlilega góðar“ Fótbolti Komst á US Open-mótið með son Tiger Woods sem kylfusvein Golf Mæta Argentínu í nótt: „Þetta er svona Bucket-list leikur Fótbolti Serena Williams fagnaði sigri í endurkomunni: „Ég var stressuð“ Sport „Engar tilviljanir í lífinu og sérstaklega ekki í íþróttum“ Fótbolti Fleiri fréttir Argentína - Ísland | Messi og félagar mæta strákunum okkar „Þær eru ekkert eðlilega góðar“ Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Glódís Perla: Líður eins og þær séu 14 á móti 11 „Þær eru drullugóðar í fótbolta“ Krakkarnir fá frí í skólum vegna HM og foreldrarnir vinna heima Myndasyrpa: Sýndu af hverju þær eru bestar í heimi Mæta Argentínu í nótt: „Þetta er svona Bucket-list leikur Benfica staðfestir að Mourinho taki við Real Madrid „Þessi leikur er gleymdur og grafinn“ Einkunnir íslensku stelpnanna: Linda kom með smá líf í seinni Uppgjörið: Ísland - Spánn 1-6 | Heimsmeistararnir léku sér í Laugardalnum Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Stelpurnar hennar Betu unnu stórt en ekki nógu stórt Atlético hafnaði risatilboði Real Madrid Tvær koma inn fyrir leikinn á móti heimsmeisturunum Yfirheyrður í ellefu tíma: „Ég er með réttu skjölin og vegabréfsáritun“ „Þær eru velkomnar á Laugardalsvöll“ Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins „Það væri ógeðslega gaman að ná að vinna Spánverjana“ „Engar tilviljanir í lífinu og sérstaklega ekki í íþróttum“ Með áhyggjur af að mæta Íslandi en Messi mun spila Miðar teknir af Íran dögum fyrir fyrsta leik Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ HM-minning: Eina tap Þjóðverja var á móti Þjóðverjum Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Dumfries skrifar undir hjá Real Madrid Bjargráður bjargaði báðum: „Í mínu tilfelli var þetta ekki þess virði“ Ísland mætir heimsmeisturum með nokkurra klukkutíma millibili Eins og að fá spark frá hesti beint í brjóstkassann Sjá meira