Skilgreiningarvald mennskunnar Erna Mist skrifar 8. júní 2026 17:01 Upp á síðkastið hefur „mennskan“ verið vinsælt hugtak sem fólk beitir í móðgunarskyni til að koma pólitískri óánægju sinni á framfæri. Stjórnmálamenn eru sagðir berjast gegn mennskunni ef þeir aðhyllast ekki ríkjandi stefnu stjórnvalda í viðkvæmum málaflokkum, fyrirtæki eru sökuð um að kippa fótum undan mennskunni þegar þau segja upp störfum sem hafa orðið tilgangslaus í kjölfar yfirstandandi tæknibyltingar, og nýkjörinn borgarstjóri er sakaður um að standa ekki með mennskunni fyrir að flagga ekki fánum annarra þjóða við Ráðhús Reykjavíkur, eins og fánaflagg sé ekki pólitísk stuðningsyfirlýsing heldur staðfesting á mennsku þeirra sem vinna í stjórnsýslunni. Höfum við virkilega rétt til að afmennska fólk sem er ósammála okkur í pólitík, kýs að bregðast afdráttarlaust við óumflýjanlegum breytingum á atvinnulífinu, eða forgangsraðar ekki pólitískum yfirlýsingum sínum á alþjóðavettvangi eftir okkar höfði? Þessi orðbeiting er ekki einungis gengisfelling á mennskunni og þeirri frumspekilegu, siðferðilegu, líffræðilegu og félagsfræðilegu merkingu sem þetta hugtak hýsir, heldur enn ein birtingarmyndin á þjóðfélagsumræðu sem er sífellt dregin á lægra plan, og samfélagi sem verður sífellt ófærara um að hnikra þeirri mórölsku fullvissu sem heldur heimsmynd hennar á floti - þar sem fólk hættir að tala saman og byrjar að kasta orðum í hvort annað eins og grjóti. Og hvað þýðir einusinni mennskan? Er hún ekki óhjákvæmilega ófullnægjandi lýsing á öllu því sem við erum? Þarf þröngsýnin ekki að mælast yfir meðallagi svo maður sjái manneskjuna í heilögu ljósi? Vitaskuld nær mennskan yfir allt það sem gerir okkur falleg; allt það góða, hreina, saklausa, sterka og mikilfenglega sem við gerum - en hún verður líka að ná yfir breyskleikann, óttann, græðgina, andúðina og aðra eiginleika sem við málum ekki á kirkjuveggi. Við erum fær um að elska og hata, skilja og fyrirlíta, hræðast og forvitnast, inngilda og útiloka. Við byggjum borgir og sprengjum þær upp - það er þversögnin sem við verðum að lifa með. Fólk má vel gera sig að talsmönnum félagshyggju, mannréttinda, opnari landamærum, ákveðins þjóðfélagshóps, stéttar, heimsýnar eða hagsmuna - en um leið og einhver gerir sig að málsvara „mennskunnar“ er viðkomandi farinn að afmennska þá sem sjá hlutina í öðru ljósi. Með því að saka fólk um að fórna mennskunni, glata mennskunni eða berjast gegn mennskunni þegar það deilir ekki sömu pólitík, sama reynsluheimi, eða sömu upplifun af tilverunni, erum við að afmennska þá sem lifa ekki lífinu á sömu forsendum og við sjálf, og slík afmennskun er hvorki dyggðug né lýðræðislega hjálpleg - hún er vegvísir í átt að fasisma. Höfundur er listmálari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Erna Mist Mest lesið Halldór 03.10.2026 Agnar Már Másson Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar