Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Valur Páll Eiríksson skrifar 8. júní 2026 07:00 Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta. Vísir/Sigurjón Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari karla í fótbolta, fer ekki í grafgötur með það að úrslit undanfarinna leikja hafi verið vonbrigði. Spilamennskan sé þó stærstan part nokkuð góð.
Vísir tók Arnar tali eftir að íslenska karlalandsliðið var mætt til Bandaríkjanna þar sem það á leik við ríkjandi heimsmeistara Argentínu á þriðjudaginn kemur. Sá leikur kemur eftir naumt 1-0 tap fyrir Japan. Í þeim leik mætti hálfgert B-lið Íslands til leiks þar sem margar stærstu stjörnur liðsins fengu ekki leyfi til að spila leikinn frá félagsliðum sínum sökum þess að leikurinn fór fram utan opinbers landsleikjaglugga. En hvað tekur Arnar út úr þeim leik? „Það voru nokkrir leikmenn sem komu inn í liðið og stóðu sig mjög vel. Það sem ég fékk út úr leiknum að við höldum áfram að vera samkeppnishæfir gegn mjög sterkum liðum og leikurinn var í sjálfu sér mjög jafn. Fyrri hálfleikur var virkilega öflugur að okkar hálfu,“ segir Arnar. Um er að ræða fjórða leikinn í röð þar sem Ísland spilar stærstan part nokkuð vel en úrslitin skila sér ekki. Liðið tapaði fyrir Úkraínu í síðasta leik undankeppninnar fyrir HM og gerði svo jafntefli við bæði Kanada og Haítí fyrr á árinu í leikjum þar sem okkar menn köstuðu frá sér forystu. „En það er líka eitt sem hefur verið að bögga okkur undanfarna leiki. Við virðumst ekki getað klára leiki almennilega og náð í úrslit. Við erum ekki að breyta jafnteflum í sigra og töpum í jafntefli. Það er frústrerandi. Mér finnst við ennþá vera að glíma við gamla drauga hvað varðar einbeitingarleysi. Það er eins og við séum smá hræddir við að sækja úrslit,“ „Það er eitthvað sem við þurfum að laga. Síðustu fjórir leikir eru Úkraína, Kanada, Haíti og Japan. Þetta hefði auðveldlega getað verið jafntefli, sigur, sigur, jafntefli, en í staðinn er það tap, jafntefli, jafntefli og annað tap. Mér finnst frekar rýr uppskera miðað við hvernig við erum að spila okkar leik,“ segir Arnar. Leikur Íslands og Argentínu er klukkan 1:00 eftir miðnætti á þriðjudag, aðfaranótt miðvikudags. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn Sport.
Landslið karla í fótbolta Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Fleiri fréttir „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjá meira