Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Sigurgeir Þorkelsson skrifar 6. júní 2026 15:40 Mette-Marit, krónprinsessa, ásamt syni sínum Marius Borg Høiby. Marius Borg Høiby, sonur Mette-Marit krónprinsessu Noregs, hefur hvorki fengið að heimsækja móður sína né vera viðstaddur mikilvæga læknisfundi er varða heilsufar hennar. Þetta gagnrýna verjendur hans en hann situr nú í gæsluvarðhaldi á meðan beðið er þess að dómur verði kveðinn upp í máli hans. Móðir hans veiktist alvarlega í vikunni en hún þjáist af lungnatrefjun.
Høiby bað formlega um að vera látinn laus úr gæsluvarðahaldi í gær vegna ástandsins. Lögreglan neitaði upphaflega beiðni hans en fangelsismálayfirvöld hafa nú gripið inn í málið. TV2 greinir frá því að lögreglan hafi neitað beiðninni vegna skorts á mannafla. Fangelsismálayfirvöld hafi þá ákveðið að stíga inn í málið með aðstoð svo hægt sé að verða við beiðninni. Gunnar Guðmundsson lungnalæknir útskýrði sjúkdómsástand krónprinsessunnar vel fyrir lesendum fyrr í dag: Hákon krónprins batt skyndilegan endi á opinbera heimsókn sína til Japan í vikunni eftir að krónprinsessunni hrakaði hratt. Þá sneri dóttir þeirra, prinsessan Ingiríður Alexandra, heim með skyndi frá Ástralíu þar sem hún var við nám. Ákveðið hefur verið að hún haldi námi sínu áfram frá Ósló í haust. Björn Skúlason, forsetamaki, ásamt prinsessunum Alexöndru Ingiríði og Mette-MaritGetty Prinsessan og bróðir hennar, prinsinn Sverrir Magnús, eyddu á fimmtudaginn nokkrum klukkustundum á sjúkrahúsi með móður sinni. Þau heimsóttu síðan um kvöldið hálfbróður sinn, Marius Høiby, í fangelsið á fimmtudagskvöld. Dómur verður kveðinn upp í máli Høiby þann fimmtánda júní. Ríkissaksóknari hefur sjö ára og sjö mánaða langrar fangelsisvistar þar sem hann er meðal annars ákærður fyrir fjórar nauðganir og ofbeldisbrot í nánu sambandi.
Noregur Kóngafólk Mál Mariusar Borg Høiby Tengdar fréttir Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Marius Borg Høiby, sonur norsku krónprinsessunnar Mette-Marit, sagðist fyrir rétti í Osló í gær ekki muna eftir að hafa tekið myndir og myndbönd sem eru meðal gagna málsins gegn honum. Myndefnið fannst í síma Høiby sjálfs, og tengist meintu broti hans gegn konu morguninn eftir partý í Skaugum árið 2018. Høiby brast í grát í dómsal í gær og kvartaði sáran yfir veru fjölmiðla í salnum og umfjöllunar þeirra um hans mál. Það hafi reynst honum erfitt að vera þekktur fyrir að vera sonur móður sinnar. 5. febrúar 2026 08:22 Ákærður í 38 liðum og löng biðröð fyrir utan réttinn í Osló Í dag hefjast réttarhöld í Noregi yfir Mariusi Borg Høiby, syni norsku krónprinsessunnar Mette Marit, en hann sætir ákæru 38 liðum fyrir ýmis brot, meðal annars nauðgun og önnur ofbeldisbrot. Hann neitar sök vegna alvarlegustu ákæruliðanna. Löng biðröð myndaðist fyrir utan héraðsdóminn í Osló í morgun þar sem réttarhöld fara fram en bæði norskir og erlendir fjölmiðlar hafa sýnt málinu mikinn áhuga. 3. febrúar 2026 08:14 Stuðningur við norsku konungsfjölskylduna í frjálsu falli Stuðningur Norðmanna við konungsfjölskylduna sína er í frjálsu falli þessa dagana. Samkvæmt nýrri skoðanakönnun á vegum norska ríkisútvarpsins styður 60 prósent Norðmanna konungsfjölskylduna og hlutfallið minnkar um tíu prósentustig á milli mánaða. 21. febrúar 2026 10:51 Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Sjá meira
Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Marius Borg Høiby, sonur norsku krónprinsessunnar Mette-Marit, sagðist fyrir rétti í Osló í gær ekki muna eftir að hafa tekið myndir og myndbönd sem eru meðal gagna málsins gegn honum. Myndefnið fannst í síma Høiby sjálfs, og tengist meintu broti hans gegn konu morguninn eftir partý í Skaugum árið 2018. Høiby brast í grát í dómsal í gær og kvartaði sáran yfir veru fjölmiðla í salnum og umfjöllunar þeirra um hans mál. Það hafi reynst honum erfitt að vera þekktur fyrir að vera sonur móður sinnar. 5. febrúar 2026 08:22
Ákærður í 38 liðum og löng biðröð fyrir utan réttinn í Osló Í dag hefjast réttarhöld í Noregi yfir Mariusi Borg Høiby, syni norsku krónprinsessunnar Mette Marit, en hann sætir ákæru 38 liðum fyrir ýmis brot, meðal annars nauðgun og önnur ofbeldisbrot. Hann neitar sök vegna alvarlegustu ákæruliðanna. Löng biðröð myndaðist fyrir utan héraðsdóminn í Osló í morgun þar sem réttarhöld fara fram en bæði norskir og erlendir fjölmiðlar hafa sýnt málinu mikinn áhuga. 3. febrúar 2026 08:14
Stuðningur við norsku konungsfjölskylduna í frjálsu falli Stuðningur Norðmanna við konungsfjölskylduna sína er í frjálsu falli þessa dagana. Samkvæmt nýrri skoðanakönnun á vegum norska ríkisútvarpsins styður 60 prósent Norðmanna konungsfjölskylduna og hlutfallið minnkar um tíu prósentustig á milli mánaða. 21. febrúar 2026 10:51