Bjóða bæjarbúum á bakgarðstónleika Freyja Þórisdóttir skrifar 6. júní 2026 16:35 Sjómannadagurinneskifirði í fyrra heppnaðist vel. Facebook/Sjómannadagurinn á Eskifirði Sjómannadagurinn verður haldinn hátíðlegur víða um land á morgun en dagskrá ýmissa bæjarfélaga er þegar hafin. Á Eskifirði hafa hjónin Valli og Elín boðið gestum og gangandi heim til sín á bakgarðstónleika.
Á Eskifirði hófust hátíðarhöld í tilefni sjómannadagsins á fimmtudaginn en á dagskránni er meðal annars þrautakeppni, partíbingó og kappróður. Klukkan hálf níu í kvöld er bæjarbúum svo boðið á uppistand og tónleika í bakgarði heimahúss. Það eru þau Valbjörn Júlíus Þorláksson og Elín Rún Sizemore sem hafa tekið sig til og útbúið garðinn heima hjá sér til tónleikahalds. „Já, þetta er í fimmta skipti sem að við erum með þessa tónleika og það hefur komið hérna alls konar tónlistarfólk eins og KK, Eyvi og Stebbi Hilmars og alls konar. Þetta er bara ótrúlega gaman,“ segir Valli. Róleg stund í garðinum Í ár er það uppistandarinn Ebba Sig sem stígur fyrst á stokk hjá þeim hjónum en næst eru það tónlistarfólkið Jónsi í svörtum fötum, Matti Matt, Hildur Magg og Júlíus Óli. Seinna í kvöld mun Páll Óskar svo skemmta fólki fram eftir nóttu í sal Eskju. „Sko það verða líka tónleikar á svona hátíðarsvæði, svo er þetta meira kósý svona um kvöldið hjá okkur, fyrir ballið og svoleiðis. Róleg stund í garðinum,“ segir Valli en hann segir áætla að gestir þeirra hjóna verði um fimmtíu talsins. Tónleikarnir eru skiplagðir í samstarfi við sjómannadagsráðið á Eskifirði. „Þau sjá um tónlistarmennina. Svo bara hendi ég upp tjaldi og set upp hljóðkerfi, borð og stóla. Geri svona kósý,“ segir hann. Þrátt fyrir grátt veður síðustu daga segir Valli vona að veðurguðirnir verði þeim hliðhollir en hvernig sem fer sjái hann fram á frábæra kvöldstund. „Væri betra ef það væri kannski ekki rigning og svona núna en þetta verður allt fínt inni í tjaldinu,“ segir Valli.
Sjómannadagurinn Fjarðabyggð Tónleikar á Íslandi Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira