Skiptiskjól á þremur stöðum í Reykjavík Lovísa Arnardóttir skrifar 5. júní 2026 15:00 Skiptiskjólið er gamalt strætóskýli. Reykjavíkurborg Unnið er að því að koma skiptiskjólum fyrir á þremur stöðum í borginni. Skiptiskjól er vettvangur fyrir íbúa til að skiptast á nytjahlutum og styrkja hringrásarhagkerfið um leið.
Í tilkynningu frá borginni kemur fram að fyrsta skiptiskjólið hafi verið sett upp við Sundlaugaveg í fyrra. Um hafi verið að ræða tilraunaverkefni sem hafi fengið góðar viðtökur íbúa og því hafi verið ákveðið að setja upp tvö ný skiptiskjól í sumar, eitt við Eiríksgötu og hitt við Sogaveg. Skiptiskjólin eru í öllum tilvikum við grenndarstöðvar og mun Sorpa hafa eftirlit með þeim eins og öðrum grenndarstöðvum á höfuðborgarsvæðinu. Skiptiskjólið er endurgert strætóskýli en búið er að innrétta það með hillum. Ætlað minni hlutum og ekki bókum Skiptiskjólið ætlað fyrir minni nytjahluti en ekki er ætlast til þess að það sé vettvangur fyrir skipti á fötum og bókum eða fyrir snyrtivörur, hnífa eða mat. Forsendur fyrir því að allt gangi vel upp er að ganga vel um skiptiskjólið og skilja aðeins eftir hreina og nothæfa hluti. Umgengisreglur hanga uppi í öllum skiptiskjólunum. Kort af skiptiskjólunum. Reykjavíkurborg Hugmyndafræðin að baki verkefninu er sambærileg þeirri sem liggur að baki Fríbúðinni í Gerðubergi þar sem hægt er að skiptast á smærri nytjahlutum án greiðslu. „Þarna geta öll fengið útrás fyrir sinn eigin búðarleik og það er um að gera að mæta á staðinn, skilja eitthvað eftir og gá hvað er í boði. Eins og fyrr segir er verið að leggja lokahönd á skýlin í dag og því á lagerinn eftir að byggjast upp,“ segir að lokum í tilkynningu.
Umhverfismál Deilihagkerfi Reykjavík Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Fleiri fréttir Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis Sjá meira