Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Eiður Þór Árnason skrifar 4. júní 2026 20:31 Sigurður Hannesson er stjórnarformaður Kviku og jafnframt framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Vísir/Ívar Fannar Kvika banki mun greiða út sérstaka arðgreiðslu til hluthafa upp á rúma tíu milljarða króna. Tillaga þess efnis var samþykkt á hluthafafundi í dag en miðað er við 2,35 krónur á hvern hlut. Í hádeginu í dag tilkynnti bankinn að ellefu starfsmönnum hafi verið sagt upp í hagræðingaraðgerðum. Alls hefur stöðugildum fækkað um átján það sem af er ári.
Kvika veitir meðal annars fjármálaþjónustu undir merkjum Auðar, Aurs, Lykils og Netgírós. „Í dag áttu sér stað 11 sársaukafullar uppsagnir og jafnframt hefur verið tekin ákvörðun um að ráða ekki í stöður sem hafa losnað og munu losna á næstu mánuðum. Fækkun starfsfólks hefur náð til nánast allra eininga bankans,“ sagði í tilkynningu Kviku fyrr í dag. Breytt og krefjandi umhverfi var sagt kalla á stöðugt aðhald í rekstri, þrátt fyrir umtalsverðan vöxt á flestum sviðum bankans. „Gert er ráð fyrir að þessi fækkun stöðugilda muni leiða til kostnaðarlækkunar sem nemur tæplega 400 milljónum króna á ársgrundvelli. Einskiptiskostnaður vegna uppsagna nemur rúmlega 100 milljónum króna, sem gjaldfærðar verða á öðrum fjórðungi ársins.“ Högnuðust um tæpa tvo milljarða á fyrsta ársfjórðungi Stjórnendur Kviku greindu frá því 12. maí að hagnaður af áframhaldandi starfsemi samstæðunnar fyrir skatta hafi numið 1,8 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Var þetta 158 prósenta aukning frá sama tímabili í fyrra. Þá sagði Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku, að fyrsti ársfjórðungur hafi verið mjög góður í rekstri bankans, vaxtatekjur haldið áfram að aukast, kostnaðaraðhald farið að skila sér og áfram væri góður vöxtur í lykilþáttum starfseminnar. Samhliða árshlutauppgjörinu í maí var tilkynnt að stjórn bankans hefði boðað til hluthafafundar þann 4. júní þar sem áðurnefnd arðgreiðsla yrði lögð til. Tillagan var svo samþykkt í dag með öllum greiddum atkvæðum, að því er fram kemur í tilkynningu. „Á aðalfundi 18. mars kom fram að eiginfjárstaða félagsins yrði áfram mjög sterk og að stjórn myndi meta frekari útgreiðslur síðar á árinu. Í ljósi þess að samruni Kviku og Arion banka verður ekki að veruleika er nú til staðar aukið svigrúm til að skila fjármunum til hluthafa,“ sagði um arðgreiðsluna í tilkynningu til Kauphallar í maí. Í júlí 2025 tilkynntu forsvarsmenn Arion banka og Kviku að bankarnir ætluðu að hefja samrunaviðræður. Fallið var frá sameiningu eftir að bankarnir áttu forviðræður við Samkeppniseftirlitið. Til stendur að greiða arðinn út til hluthafa 10. júní. Fréttin er í vinnslu.
Kvika banki Mest lesið Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Kviku banka Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Viðskipti innlent Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Viðskipti innlent Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Viðskipti innlent „Þetta er sögudrifinn söngleikur með rómantísku ívafi“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Sjá meira