Sport

Bikarmeistarinn Andrea fær stutt sumar­frí

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Andrea kom til Anderlecht frá Breiðabliki í janúar. 
Andrea kom til Anderlecht frá Breiðabliki í janúar.  vísir / sigurjón

Andrea Rut Bjarnadóttir varð bikarmeistari á sínu fyrsta tímabili í atvinnumennsku en það eitt og sér þykir ekki ásættanlegur árangur hjá belgíska stórliðinu Anderlecht. Liðið fær bara stutt sumarfrí og þarf svo að byrja að undirbúa aðra atlögu að deildarmeistaratitlinum. 

Íslendingaliðið Anderlecht vann öruggan 3-0 sigur í bikarúrslitaleiknum um helgina gegn Zulte Waregem og titlinum var vel fagnað í grenjandi rigningu.

„Þetta var bara geggjaður dagur og geggjað að enda tímabilið svona, að vinna bikarinn,“ sagði Andrea í viðtali sem var sýnt í Sportpakka Sýnar og má sjá hér fyrir neðan.

En þó bikarsigurinn hafi sannarlega verið sætur uppliði Anderlecht ákveðið vonbrigðatímabil, því í fyrsta sinn í átta ár tókst liðinu ekki að vinna deildina og Leuven varð belgískur meistari.

„Já þetta er alveg ákveðinn skellur. Klúbburinn setur þann standard að vinna deildina á hverju ári en þetta var mikil samkeppni við Leuven upp á efsta sætið. Þessi tvö lið hafa verið að berjast um deildina en þetta er mikill skellur þetta árið.“

Andrea og Vigdís Lilja Kristjánsdóttir, bikarmeistarar með Anderlecht. anderlecht RSC

Eftir þessi vonbrigði var ákveðið að sumarfrí leikmanna yrði með styttra móti í ár.

„Já við fáum bara tvær vikur, ekki langt frí. Þeir eru greinilega með alvöru markmið að byrja þetta snemma, endurheimta bikarinn og vinna deildina á næsta ári… Það er bara stutt frí heima. Kannski ekki verið að refsa okkur en þeir vilja gera þetta vel,“ sagði Andrea um undirbúningstímabilið sem hefst hjá henni 15. júní.

Og Andrea vonar að þetta beri árangur því markmiðið er að vinna sér inn sæti í íslenska landsliðinu.

„Mér finnst ég alveg eiga það skilið en ég er svosem ekkert mikið að velta mér upp úr þessu. Vonandi fæ ég tækifærið ef ég held áfram að standa mig og sýna hvað ég get.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×