Formúla 1

Fleiri lið reyndu að sækja Leclerc

Andri Broddason skrifar
Leclerc er búinn að framlengja við Ferrari en fleiri lið reyndu að sækja ökuþórinn.
Leclerc er búinn að framlengja við Ferrari en fleiri lið reyndu að sækja ökuþórinn. Kym Illman/Getty Images

Charles Leclerc framlengdi samning sinn við Ferrari í vikunni en greindi frá því að fleiri lið reyndu að semja við hann. Leclerc vildi ekki greina frá hvaða lið það væri.

Charles Leclerc er búinn að vera ökumaður Ferrari síðan 2019 eftir að hafa verið eitt ár með liði Sauber fyrir það. Leclerc framlengdi samning sinn við Ferrari en ekki kemur fram hversu langur samningurinn er. Hið minnsta er framlenging samningsins út árið 2028.

Liðið sem gert er ráð fyrir að hafi verið í viðræðum við er lið Aston Martin. Liðið hefur ekki átt gott gengi það sem af er tímabils og er eitt af tveimur liðum sem hafa ekki enn þá fengið stig á tímabilinu.

Leclerc mun á næsta ári hafa keyrt fleiri keppnir en Michael Schumacher fyrir ítalska liðið en hann hefur ekki notið sömu velgengni og hann. Schumacher varð heimsmeistari fimm sinnum og vann 72 keppnir fyrir Ferrari á meðan Leclerc hefur aðeins unnið átta.

Leclerc er bjartsýnn fyrir framtíðinni og hefur trú á sér og liðstjóra Ferrari, Fred Vasseur, að koma liðinu aftur á toppinn í Formúlu 1. „Það er mikil nýsköpun á bílnum okkar og við erum með langtíma markmið.“

Eftir slæmt síðasta ár þar sem liðið endaði í fjórða sæti heimsmeistarakeppni bílasmiða hefur Ferrari byrjað vel í ár. Sem stendur er liðið í öðru sæti og Leclerc er í þriðja sæti heimsmeistaramóts ökuþóra.

„Við vitum hvað vantar hjá okkur og það tengist vélinni í bílnum. Við erum með plan í vændum sem mun vonandi bæta stöðuna.“

Mónakókappaksturinn er um helgina og er það mikilvæg keppni fyrir Leclerc þar sem þetta er heimakeppnin hans. Keppnin hefst á sunnudaginn klukkan eitt og er sýnd á Sýn sport Viaplay.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×