Körfubolti

Bjóða upp á á­fanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Körfuboltadómararnir Bjarni Hlíðkvist Kristmarsson, Kristinn Óskarsson og Birgir Örn Hjörvarsson í leik í úrslitakeppninni í vor.
Körfuboltadómararnir Bjarni Hlíðkvist Kristmarsson, Kristinn Óskarsson og Birgir Örn Hjörvarsson í leik í úrslitakeppninni í vor.

Tindastólsfólk er ekki alltaf ánægt með dómgæsluna í leikjum sinna körfuboltaliða en nú fá þau og fleiri tækifæri til að kynnast betur krefjandi heimi körfuboltadómarans.

Fjölbrautaskóli Norðurlands Vestra á Sauðárkróki býður nefnilega upp á nýjung á komandi haustönn í samstarfi við KKÍ þegar tveggja eininga áfangi í körfuboltadómgæslu verður kenndur í fyrsta sinn við skólann.

Körfuknattleikssamband Íslands segir frá þessu á miðlum sínum og hvetur áhugasama eindregið til að taka þátt og prófa en þetta gæti verið góð leið til að kynnast körfuboltanum enn frekar og fá sömuleiðis betri innsýn í heim dómaranna.

„Við erum virkilega spennt að sjá þessi fræði á námskrá Fjölbrautaskóla Norðurlands Vestra og hlökkum til að sjá nýja dómara verða til. Reynslumiklir dómarar kenna áfangann sem veitir réttindi til að dæma leiki á vegum KKÍ,“ segir í fréttinni.

Áhugasöm þurfa að setja sig í samband við FNV í tölvupósti fyrir frekari upplýsingar og skráningu. Tölvupósturinn er: fnv@fnv.is

Auglýsing FNVKKÍ



Fleiri fréttir

Sjá meira


×