Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Andri Broddason skrifar 2. júní 2026 22:02 Elvar Már Friðriksson og félagar í La Laguna Tenerife eru komnir yfir í viðureigninni á móti Real Madrid Getty/Jón Gautur Elvar Már Friðriksson og félagar í La Laguna Tenerife unnu Real Madrid í fyrsta leik liðanna í úrslitakeppni spænsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta. Þeir tryggðu sigurinn með þriggja stiga körfu í blálokin til að komast einu stigi yfir. Leikurinn endaði 98-97.
Fyrsti leikur í úrslitakeppni spænsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta fór fram í kvöld. La Laguna Tenerife endaði deildina í áttunda sæti og fá þá deildarmeistara Real Madrid í fyrstu viðureign úrslitakeppninnar. Real Madrid byrjaði sterkt en Tenerife náði að halda í við þá. Eftir þrjá leikhluta var Real Madrid fjórum stigum yfir, 75-71. Í fjórða leikhluta náði La Laguna Tenerife að komast yfir. Það varði ekki lengi þar sem Real Madrid endurheimti forystuna fljótt aftur með frábærri spilamennsku. Þegar ellefu sekúndur voru eftir af leiknum var Real Madrid að vinna 97-95. Þá taka La Laguna Tenerife menn leikhlé og byrja með boltann á vallarhelmingi Real Madrid. Þar fær Jaime Fernandez sendingu og setur niður þriggja stiga körfu þegar fjórar sekúndur eru eftir og reyndist það lokakarfa leiksins. Tenerife vann leikinn 98-97. ¡LA LAGUNA TENERIFE @CB1939Canarias SE LLEVA EL PRIMER ASALTO CON ESTE TRIPLAZO DE JAIME FERNÁNDEZ A SEGUNDOS DEL FINAL! 🔥📺 @DAZN_ES | #PlayoffLigaEndesa | @CB1939Canarias pic.twitter.com/TB0WzEI61W— Liga Endesa (@ACBCOM) June 2, 2026 Aðeins þarf að vinna tvo leiki til að vinna viðureignina. Real Madrid er þá komið með bakið upp að vegg þar sem La Laguna Tenerife leiðir viðureignina 1-0. Næsti leikur er spilaður á Tenerife. Jaime Fernandez sem tryggði sigurinn fyrir Tenerife var stigahæstur í leiknum með sautján stig ásamt liðsfélaga sínum Wesley Van Beck. Elvar Már Friðriksson spilaði ekki mikið en var með fjögur stig og þrjár stoðsendingar.
Spænski körfuboltinn Mest lesið Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Stórmerkileg byrjun Freys hjá Rosenborg Fótbolti Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Enski boltinn Leik lokið: KR - ÍA 5-1| Hefndu ófaranna á Skaganum Íslenski boltinn Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Íslenski boltinn „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Uppgjörið: FH - KA 3-0 | FH-ingar fjórum stigum frá fallsvæðinu Íslenski boltinn Þróttarar brutu bikarinn Íslenski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Fleiri fréttir Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ Sjá meira