Baldur og Herjólfur sigla til Eyja Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 2. júní 2026 19:51 Lukkan hefur ekki leikið Vestmannaeyingum í lófum undanfarið. Vísir/Vilhelm Ferjurnar Baldur og Herjólfur munu báðar sigla til og frá og með næsta mánudegi 8. júní. Ferjan Særún mun sinna siglingum til Flateyjar í fjarveru Baldurs.
Fram kemur í tilkynningu frá innviðaráðuneytinu að báðar ferjurnar muni halda úti siglingum til Eyja á meðan unnið er að viðgerð á annarri vél Herjólfs sem bilaði í apríl. Gert er ráð fyrir að viðgerð á vélinni ljúki upp úr miðjun júní. Áætlun fyrir Breiðafjörð birt innan skamms Á meðan mun ferjan Særún sigla til Flateyjar á Breiðafirði í fjarveru Baldurs og tryggja þjónustu við samfélagið þar. Fram kemur að siglingaáætlun fyrir Breiðafjörð verði kynnt innan skamms. „Vegna mikilla anna í flutningum til og frá Vestmannaeyjum á næstunni var talið nauðsynlegt að varaskipið Baldur bættist við ferjuþjónustu til Eyja á þessu tímabili. Miklir flutningar eru fyrirhugaðir á fólki og farartækjum, m.a. vegna íþróttaviðburða um helgar,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins en Eyjafréttir greindu frá því í dag að sumaráætlun Herjólfs hefði verið frestað. Vegagerðin og Vestmannaeyjabær héldu íbúafund í Höllinni síðdegis í dag þar sem Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra kynnti þessar breytingar. Fram kemur að samráð hafi verið haft við Eyjamenn og Breiðfirðinga um breytingarnar. Nýr dýpkunarverktaki Breiðafjarðarferjan Baldur hefur um árabil verið varaskip fyrir Herjólf og heimild er fyrir því í samningum Vegagerðarinnar við rekstraraðila skipsins að Baldur taki við verkefnum Herjólfs við sérstakar aðstæður. Í tilkynningunni segir að alvarleg bilun í annarri tveggja aðalvéla Herjólfs hafi skapað slíkar aðstæður. Óvenjuhagstætt veðurfar og bilanir í dæluskipi við Landeyjahöfn voru ekki til þess fallnar að bæta stöðuna. Belgíski verktakinn Jan de Nul tekur við dýpkun í haust með mun öflugri búnaði og viðbragði en nú þekkist, að sögn ráðuneytisins. „Aðstæður í Landeyjahöfn hafa verið erfiðar í vetur, óhagstæð veðurskilyrði hafa torveldað dýpkun og bilanir komið upp í dýpkunarskipi sem sinnti verkefninu. Vegagerðin samdi við fyrirtækið til ársins 2029 en það eitt hið stærsta í heiminum á þessu sviði,“ segir í tilkynningunni.
Ferjan Baldur Herjólfur Vestmannaeyjar Flatey Stykkishólmur Landeyjahöfn Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Sjá meira