Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Andri Broddason skrifar 2. júní 2026 19:16 Bjarki Már Elísson varð ungverskur meistari í fjórða og síðasta skipti í röð en hann er á förum frá félaginu VÍSIR/VILHELM Bjarki Már Elísson og félagar í Vezprem eru ungverskir meistarar í handbolta. Þeir unnu Pick Szeged með Íslendinginn Janus Daða Smárason innanborðs 36-34.
Vezprem varð í kvöld ungverskur meistari í þrítugasta skipti eftir frábæran endurkomusigur á Pick Szeged í seinni leik liðanna í úrslitum. Bjarki Már var með þrjú mörk í leiknum og voru tvö þeirra af vítalínunni. Janus Daði var aðeins með tvö mörk og náði sér ekki almennilega á strik í leiknum. Leikurinn var heilt yfir mjög jafn en undir lok fyrri hálfleiks byrjaði Pick Szeged að sækja í sig veðrið og voru þrem mörkum yfir í hálfleik 19-16. Leikmenn Vezprem komu sterkir inn í seinni hálfleikinn og munur liðanna var aðeins tvö eða þrjú mörk en Pick Szeged var alltaf yfir. Síðan kemur átta mínútna kafli þar sem Pick Szeged skorar ekki mark og á sama tíma skorar Vezprem fimm mörk og allt í einu eru Bjarki Már og félagar í bílstjórasætinu. Fjögurra marka forysta þegar átta mínútur voru eftir reyndist of erfitt fyrir Pick Szeged að leiðrétta og Vezprem sigldu sigrinum heim þar sem lokatölur leiksins voru 36-34. Bjarki Már endar feril sinn hjá Vezprem vel en hann er á förum frá félaginu eftir tímabilið. Hann gekk til liðs við félagið árið 2022 og hefur unnið deildina öll sín ár hjá félaginu eða fjórum sinnum í röð.
Ungverski handboltinn Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool Fótbolti John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Fleiri fréttir Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Sjá meira