Beri skylda að skila Dananum hugsanlega á Þingvöllum Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 2. júní 2026 18:11 Kári Stefánsson er hluti hópsins sem vill fá að útkljá það fyrir fullt og allt hvort Jónas eða Jonas liggi á Þingvöllum. Vísir/Samsett Kári Stefánsson, hluti af hópi fólks sem vinnur að kvikmynd um ævi þjóðskáldsins Jónasar Hallgrímssonar, segir Íslendingum bera skylda að skila beinum einhvers löngu látins Dana, reynist hann liggja í gröf þjóðskáldsins á Þingvöllum.
Greint var frá því í gærkvöldi að hópur fólks undir forystu Elínar Hirst fjölmiðlakonu hefði óskað þess fyrir Þingvallanefnd að fá að opna gröf Jónasar Hallgrímssonar og taka erfðasýni úr beinunum sem hvíla í þjóðgrafreitnum við hlið Einars Benediktssonar og ganga endanlega úr skugga um það að það sé þjóðskáldið sem þar hvíli, en ekki löngu látinn Dani. Sögusagnir um það að beinin í gröfinni séu af einhverjum allt öðrum en Jónasi hafa verið þrálátar allt frá því að þau voru flutt til landsins og jarðsett á Þingvöllum árið 1946. Þessar fyrirætlanir hópsins sem kennir sig við skáldið hafa vakið upp margvísleg viðbrögð. Þær hafa verið gagnrýndar fyrir að raska grafarró Jónasar til að auglýsa kvikmynd. Jónas er ljóðin, ekki beinin Kári Stefánsson er hluti af hópnum og gefur lítið fyrir þessa gagnrýni í Reykjavík síðdegis í dag. „Ég trúi ekki á guð, ég trúi ekki á skrattann og ég trúi ekki á bein sem liggja grafin þarna. Ég held að sá möguleiki sé fyrir hendi að þetta séu bein Jónasar og ég held líka að það sé mögulegt að þetta séu ekki beinin hans. Ég held því fram að ef leyfi fæst til að grafa þarna niður og verkið er fært í hendurnar á Agnari Helgasyni þá komum við til með að fá svar sem skiptir máli. Þá er hægt að ákvarða í eitt skipti fyrir öll hvort þarna liggi bein Jónasar eða ekki,“ segir hann og bætir við: „Jónas Hallgrímsson er þau ljóð sem hann orti, ekki bein sem eru einhvers staðar grafin.“ Brotið á rétti löngu látins Dana Kári segir að Íslendingum beri skylda til að skila beinunum, reynist það vera danskur maður hvíla í gröf skáldsins sem hafði ólíklega nokkra tengingu við Ísland. „Vegna þess að við vitum ekki hverra manna þessi bein eru, er sá möguleiki fyrir hendi að við komumst að raun um að það sé búið að brjóta á rétti látins Dana sem á rétt á því að liggja grafinn í Kaupmannahöfn en ekki einhvers staðar á Þingvöllum,“ segir hann. Fái hópurinn leyfi til að opna gröfina ætti verkið ekki að taka langan tíma, að sögn Kára. Endanlega niðurstaða gæti fengist fyrir haustið sé vilji til þess fyrir hendi.
Þingvellir Fornminjar Þjóðgarðar Kirkjugarðar Jarðneskar leifar Jónasar Hallgrímssonar Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent „Fólk er bara slegið“ Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Selenskí kíkti á klakann Erlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira