Innherji

Sjóður Ís­lands­sjóða tekur á sig 14 pró­senta högg eftir stórt veð­mál á Ocu­lis

Hörður Ægisson skrifar
Mogens Mogensen og Gísli Halldórsson eru sjóðstjórar hlutabréfa hjá Íslandssjóðum.
Mogens Mogensen og Gísli Halldórsson eru sjóðstjórar hlutabréfa hjá Íslandssjóðum.

Annar af tveimur helstu hlutabréfasjóðunum í stýringu Íslandssjóða, ætlaður almennum fjárfestum, varð fyrir nærri fjórtán prósenta höggi í gær þegar Oculis lækkaði í verði um liðlega helming en sjóðurinn var með mest af sínum eignum bundið í bréfum líftæknifélagsins.


Tengdar fréttir

Grein­endur „hissa“ með niðurstöðuna hjá Ocu­lis en mæla enn með kaupum

Greinendur hafa lækkað verðmöt sín á Oculis eftir að ljóst varð að eitt af þremur þróunarlyfjum þess mistókst að ná markmiðum sínum í lykilrannsóknum en taka fram að þrátt fyrir vonbrigðin þá sé virði félagsins einkum byggt á lyfinu Privosegtor (OSC-05), sem er til meðferðar við bráðri sjóntaugabólgu, og mæla enn með kaupum. Líklegt er talið að gengi bréfa Oculis muni í kjölfarið haldast í kringum 15 til 20 dalir á hlut, um og yfir þriðjungi lægra en fyrir helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×